Í bókinni má finna splunkunýjar uppskriftir sem ekki hafa komið út áður ásamt eldri gullmolum.
Bókin fæst í eftirfarandi verslunum:
Mismunandi verð er á bókinni eftir því hvar hún er keypt.
Fullkomin jólagjöf fyrir prjónaaðdáendur!
]]>
Uppskriftin er af húfu fyrir þá litlu engla sem koma í heiminn og yfirgefa okkur snemma á lífsleiðinni. Uppskriftin er frí og er hægt að nálgast hana með því að smella hér.
Garnið sem uppskriftin miðar við er sérvalið - lungamjúk blanda af extrafínni merino ull, silki og kasmírull. Tegundin heitir Feeling frá Lana Gatto og fæst hér.
Einnig er hægt að nota Super Soft frá Lana Gatto.
Stroff gefur 25% afslátt af Feeling og Super Soft garninu næstu daga með afsláttarkóðanum ENGLAR
Prjónahópurinn Prjónaró stendur fyrir fyrir samprjóni á húfunni fyrir Gleym mér ei styrktarfélag. Húfurnar sem verða til í samprjóninu er ætlunin að gefa Gleym mér ei og vökudeild Landspítalans. Við hvetjum alla sem ætla að taka þátt til að finna Facebook hópinn fyrir samprjónið og ganga í hann með því að smella hér. Þar er allar helstu upplýsingar að finna.
Samprjónið stendur til 23. mars, og er hægt að skila húfum inn í samprjónið þangað til. Ætlunin er svo að afhenda Gleym mér ei og vökudeildinni húfurnar þann 25. mars.
Gleym mér ei óskar sérstaklega eftir því að þrjár minnstu stærðirnar séu prjónaðar úr ljósum hlutlausum litum (hvítt / off white / beige / ljósgrátt t.d.), en stærri stærðirnar mega endilega vera úr allskonar litum.
Til 23. mars er hægt að skila húfum á eftirtaldar staðsetningar:
Það fjölgar ört í hópi prjónara, og gleðilegast af öllu er að sjá allt unga fólkið sem nýtur þess að prjóna.
Í upphafi nýs árs er kjörið að horfa tilbaka, og birtum við hér lista yfir vinsælustu prjónauppskriftir Stroff á árinu 2021.
Smelltu á myndirnar ef þú hefur áhuga á að skoða uppskriftirnar betur.
1. Falskur fugl
Falskur fugl var vinsælasta og söluhæsta prjónauppskrift Stroff á árinu 2021. Enda er uppskriftin ekki fölsk, og peysan alls ekki prjónuð úr fiðri.
Peysan er prjónuð með tvíbandaprjóni úr þessum garntegundum:
2. Urður oversized peysa
Urður er fullorðinsútgáfan af Kára peysunni, og kom út í október 2018. Hún lætur það ekki stoppa sig og er ennþá ein af okkar vinsælustu uppskriftum. Það er skiljanlegt því hún er klassísk, einföld og falleg - og það er ljóst að mjög margir hafa prjónað Urði, og Kára, sem sínar fyrstu peysur.
Urður er prjónuð úr garni sem hefur prjónfestuna 16-18 lykkjur (skoða garn með þessa prjónfestu) á prjóna nr. 6.
3. Ilmur cardigan
Ilmur cardigan kom fyrst út í bókinni Una prjónabók sem við gáfum út, í samstarfi með Sölku Sól. Síðar kom hún einnig út stök í netversluninni, og vinsældirnar halda bara áfram. Einfalt og fallegt mynstur sem er nú að finna í mörgum flíkum (sjá Ilmur lína) í léttri og fallegri peysu. Hvernig gæti þetta klikkað?
Ilmur er prjónuð með tvíbandaprjóni á prjóna nr. 5,5:
4. Kári oversized rúllukragapeysa
Kári kom okkur á kortið. Við gáfum þessa uppskrift út sumarið 2018, og enn er hún á topplistum. Við nefndum meira að segja son okkar Kára eftir að þessi uppskrift kom út!
Kári er prjónuð úr garni sem hefur prjónfestuna 16-18 lykkjur á prjóna nr. 5,5.
Smelltu hér til að skoða garntegundir sem henta í Kára peysuna.
5. Karitas dömupeysa
Karitas dömupeysa kom út á árinu 2021, og hún kom út með látum! Garnið og litirnar sem við notuðum í frumgerðina selst alltaf hratt upp þegar það kemur í hús. Karitast dömupeysa er prjónuð með tvíbandaprjóni á prjóna nr. 7
6. Frostrós jólahúfa
Við reynum að gefa út að minnsta kosti eina jólauppskrift á hverju ári. Frostrós var jólahúfan árið 2021. Hún kom ekki út fyrr en í október og er samt sjötta vinsælasta prjónauppskriftin á árinu. Geri aðrir betur! Þú getur byrjað núna strax að framleiða jólahúfur fyrir næstu jól.
Húfan er prjónuð á prjóna nr. 3,5 og við mælum með þessu garntegundum: Feeling frá Lana Gatto, Merinocot frá Lana Gatto eða Merino 100% frá Katia.
Dúskinn gerðum við sjálf með dúskagerðartólinu úr garninu sem húfan er úr, en einnig er hægt að kaupa tilbúna dúska er gerviefnum.
7. Karitas cardigan
Fyrr á árinu 2021 gáfum við út lokuðu útgáfuna og um vorið kom hneppta peysan. Hún sló ekki síður í gegn. Karitas hneppt peysa er prjónuð með tvíbandaprjóni á prjóna nr. 7.
8. Nótt eftir nótt rúllukragapeysa fyrir fullorðna
Nótt eftir nótt er ein af þessum sem kom út fyrir rúmlega tveimur árum og er enn að gera gott mót.
Og konurnar ganga alveg í þessari líka!
Peysan er prjónuð á prjóna nr. 5,5-6 úr garni sem hefur prjónfestuna 16-18 lykkjur. Smelltu hér til að skoða garntegundir sem henta.
9. Ynja vettlingar fyrir fullorðna
Yndislega einfaldir og fallegir, Ynja vettlingar komu út í september og eru samt níunda vinsælasta uppskriftin. Eitthvað er að virka.
Vettlingarnir eru prjónaðir á prjóna nr. 3,5 úr garni sem gefið er upp á grófari prjóna, svo útkoman er þétt og góð.
Við mælum helst með þessum garntegundum í þessa vettlinga: Arles Merino eða Super Soft eða Katia Merino 100% eða Feeling frá Lana Gatto.
10. Ynja sokkar fyrir fullorðna
Sokkar í stíl við vettlingana? Að sjálfsögðu!
Prjónaðir á prjóna nr. 4 úr garni sem hefur prjónfestuna 19-21 lykkju.
Smelltu hér til að sjá garnið sem hentar.
11. Nótt eftir nótt rúllukragapeysa fyrir krakka
Jafnt á börn og fullorðna, Nótt eftir nótt uppskriftirnar halda áfram vinsældum sínum.
Peysan er prjónuð á prjóna nr. 5,5-6 úr garni sem hefur prjónfestuna 16-18 lykkjur.
Smelltu hér til að skoða garntegundir sem henta.
12. Una eyrnaband
Kom fyrst út í Unu prjónabók og síðar sem stök rafræn uppskrift í netversluninni okkar. Einfalt og krúttlegt, og dúskurinn gerir mikið!
Prjónað á prjóna nr. 5,5 úr Prime Merino eða Merino 100% eða Super Soft frá Lana Gatto.
13. Maísól heilgalli og húfa
Hvað er krúttlegra en lítið stýri í heilgalla? Ekki margt. Þessi er einn sá allra vinsælasti, en þú getur skoðað alla heilgallana okkar með því að smella hér.
Gallinn er prjónaður á prjóna nr. 4 og við mælum helst með Katia Merino 100% eða Feeling frá Lana Gatto eða Super Soft frá Lana Gatto.
14. Nóra dömupeysa
Klassísk, einföld og falleg og til bæði fyrir fullorðna og börn.
Prjónuð á prjóna nr. 4,5 og helst úr þessum garntegundum.
15. Vesturport vesti
Það var mikið vestaæði á árinu og við létum okkar ekki eftir liggja.
Þetta einfalda og fallega vesti er prjónað á prjóna nr. 6 með tvíbandaprjóni úr einum þræði af Feeling frá Lana Gatto og einum þræði af mohair.
Sem fyrr þökkum við öllum okkar viðskiptavinum innilega fyrir samskiptin og viðskiptin á árinu 2021. Vonandi heldur prjónamenningin og áhuginn á íslandi bara áfram að vaxa og við erum stoltir þátttakendur í því! Upp með prjónana.
]]>
Alla þessa viku verður tvennt í gangi hjá okkur.
- Í fyrsta lagi verður 25% afsláttur af öllum prjónauppskriftum og bókum alla vikuna, bæði í versluninni og á www.stroff.is
- Í öðru lagi verður sérstakur kaupauki fyrir alla sem versla vörur hjá okkur (gildir ekki um uppskriftir).
Kaupaukinn er veglegur, þykkur og stór verkefnapoki að eigin vali að andvirði 2.490 kr. Við erum með 2 gerðir sem sjást á myndunum hér fyrir neðan.
Hægt er að skoða þá betur með því að smella á myndirnar.
Og nei, það kemur ekki til greina að skilja landsbyggðina útundan.
Kaupaukinn verður líka í boði með netpöntunum. Settu hvaða vörur sem er (gildir ekki með uppskriftum) í körfuna á www.stroff.is, bættu svo öðrum hvorum verkefnapokanum með í körfuna áður en þú gengur frá greiðslu.
Sjá mynd hér fyrir neðan, afslátturinn kemur sjálfkrafa ef aðrar vörur eru með í körfunni.
Afslátturinn og kaupaukinn sem hér er auglýstur gildir vikuna 31.5.2021 til og með 6. júní 2021.
]]>Skírdagur | Fimmtudagur 1. apríl | Lokað | |
Föstudagurinn langi | Föstudagur 2. apríl | Lokað | |
Laugardagurinn 3. apríl | Laugardagur | Opið frá 11-15 | |
Annar í páskum | Mánudagur 5. apríl | Lokað | |
Árshátíð starfsmanna | Laugardagur 10. apríl | Lokað | |
Sumardagurinn fyrsti | Fimmtudagur 22. apríl | Lokað | |
Baráttudagur verkalýðsins | Laugardagur 1. maí |
|
|
Uppstigningardagur | Fimmtudagur 13. maí | Lokað |
]]>
Við sáum okkur hins vegar ekki fært að opna verzlunina fyrr en leikskólafríinu væri lokið og því var stefnan sett á opnun þann 7. ágúst.
Allt að verða klárt og styttist í opnun.
Fyrsti dagurinn gekk frábærlega, langt fram úr okkar björtustu vonum. Það var stanslaus straumur allan daginn, þó án þess að búðin væri troðin - enda allir að virða 2ja metra regluna.
Það var algjörlega frábært að hitta allt þetta glaða, jákvæða og skemmtilega fólk. Mikið erum við glöð með að vera búin að opna þessa fallegu verzlun, og þakklát fyrir ykkur kæra fólk sem sækið okkur heim.
Nú er búðin opin, og er hægt að sjá nákvæman og uppfærðan opnunartíma með því að smella hér - en til að byrja með verður þetta virka daga frá 11-17 og á laugardögum frá 11-15.
Verið hjartanlega velkomin til okkar í Skipholtið. Það er alltaf heitt á könnunni, molar í skálinni og handspritt í brúsanum.
Með kærri prjónakveðju,
Sjöfn & Grétar
]]>Við gætum alltaf að fyllsta hreinlæti í okkar lager- og skrifstofuhúsnæði en á þessum tímum gerum við enn betur.
Við sinnum heimkeyrslu pantana á höfuðborgarsvæðinu.
Þú getur pantað þitt garn og fylgihluti á www.stroff.is og fengið þá senda heim.
Heimkeyrsla á höfuðborgarsvæðinu kostar litlar 990 kr, en ef þú verslar fyrir 10.000 kr eða meira er í boði að velja fría heimsendingu.
Við keyrum sjálf út pantanirnar á höfuðborgarsvæðinu, og mun starfsmaðurinn á öllum tímum meðhöndla pakkann með hanska á höndum. Óskir þú eftir því að pakkinn sé skilinn eftir í anddyri eða við útidyr þá geturðu óskað eftir því með athugasemd í körfunni, eða tölvupósti á stroff@stroff.is
]]>
Engin breyting hefur orðið á sóttum pöntunum, eftirfarandi á aðeins við um sendar pantanir.
Við höfum ákveðið að auka samstarfið við Póstinn á ný, eftir að hafa fylgst vel með því síðustu misseri hvernig Pósturinn hefur bætt þær brotalamir sem okkur þóttu vera á þjónustunni.
Pósturinn lofar enn frekari úrbótum á árinu, t.d. verður Póstboxum fjölgað verulega og þau sett upp í fyrsta sinn á landsbyggðinni.
Einnig erum við að sjá að heimsendingar á landsbyggðinni eru gjarnan að skila sér heim að dyrum á 1-2 virkum dögum, sem er frábært.
Svona verður verðskráin á sendingum, vekjum sérstaka athygli á lækkuðu verði á póstsendingu heim að dyrum með Póstinum.
Pósturinn pakki í Póstbox - 790 kr
Ef þú hefur ekki kynnt þér Póstboxin hjá Póstinum þá geturðu gert það með því að smella hér.
Athugið að vegna sendinga innanlands þarf ekki að skrá sig sérstaklega fyrir Póstboxi hjá Póstinum.
Þú skráir einfaldlega heimilisfang þess Póstbox sem þú vilt sækja pakkann í, og auðkennir það sérstaklega með farsímanúmerinu þínu.
Dæmi:
Jón Jónsson
Póstbox xxxxxxx (þitt farsímanúmer í stað x)
Kaplakrika
220 Hafnarfjörður
Þú færð tilkynningu í símann þegar pakkinn er kominn (sms / tölvupóst). Þá ferðu í póstboxið, skannar inn QR-kóðann eða stimplar inn GSM-númerið þitt og PIN-númerið sem þú fékkst. Póstboxið opnast og pakkinn er kominn í þínar hendur.
Pakkann getur þú nálgast allan sólarhringinn.
Staðsetningar Póstboxa geturðu skoðað með því að smella hér.
Heimsending á höfuðborgarsvæðinu - 990 kr
Berist pöntun fyrir kl 12 á virkum dögum verður pöntunin keyrð heim til þín milli kl 17 og 22 samdægurs. Pantanir sem berast eftir kl 12 verða keyrðar út næsta virka dag, milli kl 17 og 22.
Ekki er keyrt í póstnúmer 116 og 190.
Ef að verkefnaálag leyfir verða pantanir sem berast eftir klukkan 12 einnig keyrðar út samdægurs.
Pósturinn pakki á pósthús - 990 kr
Við sendum pakkann á þitt pósthús og þú nálgast hann þar.
Pósturinn - pakki heim - 1.290 kr
Við sendum pakkann heim að dyrum um allt land, með þeim eina fyrirvara að pósturinn komi almennt heim að dyrum hjá þér. Notast er við Landpóst þegar það er eini valkosturinn.
Fríar sendingar
Ef þú verslar fyrir meira en 10.000 kr bjóðum við þér fría sendingu á þitt pósthús.
Ef þú verslar fyrir meira en 15.000 kr bjóðum við þér fría sendingu heim að dyrum með Póstinum.
Þessir fríu sendingarmöguleikar birtast sjálfkrafa á síðunni þegar karfan þín hefur náð þessum upphæðum.
Við höfum mikla trú á þessum breytingum, og trúum því að þær auki og bæti þjónustuna okkar.
Ef þið hafið einhverjar sérstakar óskir eða athugasemdir, ekki hika við að hafa samband við okkur með tölvupósti á netfangið stroff@stroff.is
]]>
Allar pantanir á vörum sem berast eftir klukkan 12 fimmtudaginn 20. febrúar verða afgreiddar þriðjudaginn 25. febrúar.
Allar pantanir á uppskriftum afgreiðast að sjálfsögðu sjálfkrafa og berast strax.
Nú er um að gera að nýta afsláttinn og versla garn um helgina, og fá svo glaðninginn afgreiddan á þriðjudaginn.
Með bestu kveðju,
Sjöfn & Grétar
]]>Við ætlum að bjóða upp á skemmtilegt tilboð yfir hina svokölluðu BFCM helgi.
Allar uppskriftir verða á 30% afslætti, en ef þú kaupir 10 uppskriftir eða fleiri færðu 20% afslátt í viðbót - sjálfkrafa.
Afslátturinn virkjast sjálfkrafa í körfunni þegar það eru 10 uppskriftir eða fleiri í henni.
Allar aðrar vörur verða á 20% afslætti.
Við vorum að bæta við virkni á www.stroff.is þar sem hægt er að skrá sig fyrir sjálfvirkri tilkynningu um að vara sé komin aftur á lager.
Þetta er mjög einfalt í notkun, og skýrir sig alveg sjálft.
Þegar þú hefur valið og ert að skoða vöru sem er uppseld þá er boðið upp á að skrá netfangið fyrir tilkynningu.
Þegar við skráum vöruna aftur á lager kemur tilkynning, sjálfkrafa og um leið, með tölvupósti á netfangið sem þú skráðir.
Við vonum að þessi nýja virkni komi vel út, og fögnum sem alltaf öllum ábendingum sem þið kunnið að hafa.
]]>Semsé, þú setur 3 uppskriftir í körfu en greiðir aðeins fyrir 2.
Ef þú setur 6 uppskriftir í körfu muntu aðeins greiða fyrir 4 þeirra.
Og svo framvegis, ekkert hámark.
Smelltu hér til að skoða allar prjónauppskiftir.
Ódýrasta uppskriftin í körfunni verður alltaf frí.
]]>Frá því að við hófum sölu á garni höfum við látið þriðja aðila sjá um að geyma lagerinn og afgreiða pantanirnar fyrir okkur. Þetta hefur alla jafna gengið vel, en með ákveðnum vanköntum sem hafa angrað okkur mikið.
Verst hefur okkur þótt þegar viðskiptavinir okkar hafa fengið pantanirnar sínar rangt afgreiddar. Einnig hefur hingað til ekki verið hægt að koma og skoða eða redda hinu og þessu utan almenns opnunartíma.
Þetta stendur til bóta.
Frá og með næstu mánaðarmótum ætlum við að flytja lagerinn í okkar eigið húsnæði og sjá sjálf um tína til pantanirnar frá ykkur á garni og öðrum vörum.
Fyrirkomulagið verður kynnt nánar þegar nær dregur, en í stuttu máli verður enn hægt að sækja í Vatnagarða 22, fá "Express heimsendingu" á höfuðborgarsvæðinu eða sækja til Flytjanda á landsbyggðinni (auk póstsendingar heim á landsbyggðinni).
Við munum semsé halda lagerinn sjálf og afgreiða pantanirnar, en fara einu sinni á dag með tilbúnar pantanir til TVG sem munu sjá um að dreifa pöntununum.
Það eina sem breytist er að við munum semsé halda lagerinn sjálf og afgreiða pantanirnar.
Þetta gerir okkur kleift að bæta þjónustuna enn frekar. Það verður einnig hægt að kíkja til okkar í kaffi og sjá litina með eigin augum eða þukla á garninu og ganga frá kaupum.
Þetta verður samt ekki eiginleg verslun með auglýstum opnunartíma. En þetta verður mun persónulegra heldur en lokað vöruhús í Vatnagörðum.
Af þessum ástæðum, til þess að auðvelda flutninginn á lagernum undir lok mánaðar verður hálfgerð rýmingarsala þangað til.
Allt garn verður á afslætti, frá 17-25%.
Smelltu á myndina til að vinda þér beint í að skoða garn.
]]>
Nú er komið að því að tilkynna um sigurvegarana.
Það voru þrír vinningar í boði.
1. Flottasta myndin, uppstilling - með eða án fyrirsætu
2. Frumlegasta eða skemmtilegasta myndin
3. Dregið af handahófi úr öllum innsendum myndum.
Dómnefnd hefur legið yfir þessum skemmtilegu myndum og er niðurstöðurnar svona:
1. vinning, fyrir flottustu myndina hlýtur
- Hanna Katrín
Virkilega falleg mynd, vel heppnað samspil lita, birtu og bakgrunns og ekki skemmir módelið fyrir. Til hamingju Hanna Katrín!
2. vinning, fyrir frumlegustu eða skemmtilegustu myndina hlýtur
- Kolbrún
Aftur, vel lukkað samspil bakgrunns, lita og uppstillingar. Verðskuldað 2. sæti! Til hamingju Kolbrún.
3. vinning, þátttökuverðlaun dregin af handahófi úr öllum innsendum myndum hlýtur:
- Henný Birna
Slembilukka eða ekki, falleg mynd - kærar þakkir fyrir að deila henni með okkur! Til hamingju Henný.
Fullt af skemmtilegum myndum bárust í keppnina og hér eru nokkrar af þeim.
Kristín Brynja sendi þessa.
Dóra Margrét, stundum kölluð prjónavélin, sendi næstu 2.
Íris Ósk sendi þessa.
Hanna Katrín, sem hreppti fyrsta sætið, sendi líka þessa mynd inn.
Inga Dóra á þessa fallegu mynd.
Vordís smellti af þessari.
Og Elísabet Ýrr þessari.
Við þökkum öllum þátttakendum fyrir þátttökuna.
Það var virkilega gaman að þessu, og aldrei að vita nema við skellum í fleiri myndasamkeppnir.
Megið endilega skrifa athugasemd hér fyrir neðan ef þið hafið áhuga á að fá fleiri myndasamkeppnir, eða ef þið hafið einhverjar ábendingar eða athugasemdir.
Við verðum í sambandi við vinningshafana von bráðar.
]]>Það var alveg einstaklega skemmtilegt stemmning á námskeiðinu, og stefnir hópurinn á að halda áfram að hittast og prjóna þó að námskeiðinu sé lokið. Þær þekktust ekki áður en námskeiðið hófst.
Næsta námskeið hefst mánudaginn 21. október, og er skráning í fullum gangi.
Smelltu hér til að lesa nánar um námskeiðið og skrá þig.
Þú getur fengið 3.500 kr afslátt af námskeiðsgjaldinu með því að nota afsláttarkóðann: KÁRI
Við fáum ekkert nema frábærar umsagnir um námskeiðin okkar.
Hér eru nokkrar.
- "Þetta var fullkomið"
-"Aðstaðan var virkilega góð og kósý!"
- "Frábært andrúmsloft og frábærir kennarar."
- "Frábært og virkilega skemmtilegt námskeið hjá ykkur. Kunni ekkert að prjóna áður en ég mætti en kann núna helstu tökin og með fullt af öðrum fróðleik í bónus. Hlakka til að mæta á komandi námskeið."
- "Þetta var frábært hjá ykkur, virkilega góðir kennarar og með mjög þægilega nærveru. Maður var ekkert hræddur að spyrja :)"
- "Virkilega gagnlegt námskeið. Þarna fékk ég fræðslu sem ég hef virkilega mikið þurft á að halda og þolinmæði kennara mikil. Mjög notaleg stemning og kennurum tókst að kveikja áhuga minn aftur á prjónamennsku."
- "Virkilega skemmtilegt og gott námskeið. Yndislegar stelpur sem kenna og ótrúlega notaleg stemning. Kennarar gefa sér góðan tíma með hverjum og einum."
]]>Fyrir áhugasama þá voru Sjöfn & Grétar í viðtali hjá Fréttablaðinu.
Það birtist í prentaðri útgáfu blaðsins þriðjudaginn 15. október á blaðsíðu 20-21.
Smelltu hér til að opna fréttablað þriðjudagsins 15. október í pdf útgáfu.
Einnig birtist það á vef Fréttablaðsins.
Smelltu hér til að opna viðtalið á frettabladid.is
Allir sem hafa keypt þessar uppskriftir í netversluninni eiga að hafa fengið tölvupóst með hlekk á nýja skjalið.
Ísafold og Röskva þörfnuðust ekki efnislegra lagfæringa, en við nýttum tækifærið og snurfusuðum Sóleyju aðeins til. T.d. gengur mynstrið í ermum nú upp í öllum stærðum.
Þessar uppskriftir eru allar á meðal okkar vinsælustu uppskrifta, og verður virkilega gaman að fylgjast með þeim tvíeflast í nýjum umbúðum.
Þessar uppskriftir eru allar á 30% afslætti þessa vikuna, til og með 8. september.
Þetta fyrirkomulag hefur gengið mjög vel, og er afhending pantana mun sneggri eftir þessa breytingu.
Staðreyndin er hins vegar sú að við höfum heyrt frá ótal viðskiptavinum sem vildu gjarnan hafa valkostinn að fá pakkann alla leið heim með Póstinum. Þetta á við um þá viðskiptavini sem búa tugi eða jafnvel rúmlega hundrað kílómetra frá sinni Flytjandastöð.
Við erum búin að útfæra leið til að verða við óskum þessara viðskiptavina, og er nú hægt að velja "Pósturinn - pakki heim" sem sendingarmáta þegar pantað er.
Áfram verður hins vegar bæði mun fljótlegra og ódýrara að fá sent með Flytjanda.
Smelltu hér til að lesa nánar um alla afhendingar- og sendingarmöguleika.
]]>Við viljum vekja sérstaka athygli á breytingum á opnunartíma vöruhúss okkar Vatnagörðum 22, og breytingum sem eru að verða á sendingarleiðum.
Gorilla House, Vatnagörðum 22, verður framvegis opið frá kl 12-17 alla virka daga.
Frá og með 1. júní er hægt að panta "Express heimsending á höfuðborgarsvæðinu". Verð = 800 kr
Berist pöntun fyrir kl 13 verður pöntunin keyrð heim til þín milli kl 17 og 22 samdægurs. Pantanir sem berast eftir kl 13 verða keyrðar út næsta virka dag, milli kl 17 og 22.
Flytjandi sér um landsbyggðina.
Verð = 800 kr.
Frá og með 17. júní byrjum við að nota Flytjanda til að dreifa vörum um landsbyggðina. Viðskiptavinir geta því sótt sinn pakka á sína Flytjandastöð 1-2 virkum dögum eftir pöntun. SMS er sent til staðfestingar þegar sækja má pakkann.
Hér má sjá afgreiðslustaði Flytjanda https://www.eimskip.is/thjonusta/innanlands/flytjandi/afgreidslustadir/
]]>
Einhvern veginn atvikaðist það svo að allir prufuprjónararnir okkar eru ungar konur. Það í sjálfu sér er algjörlega frábært og endurspeglar einstaklega vel og fallega hvað prjónamenningin á Íslandi er sterk og alltaf vaxandi.
Eðli málsins samkvæmt erum við í nær daglegum samskiptum við þessar snjöllu konur. Öll samskipti eru hressandi og skemmtileg, gagnrýnin jákvæð og uppbyggileg, og hrósin enn betri.
Eins og við þekkjum öll myndast og styrkjast alls konar tengsl og vináttusambönd í gegnum prjónaskapinn. Um helgina ætlum við að eyða sérstöku púðri í að viðurkenna og tengjast enn frekar okkar bestu prjónavinum. Öllum prufuprjónurunum okkar er boðið til veislu og við ætlum að gleðjast og skála saman. Skála fyrir vináttu, prjónum, gleði og hamingju.
Það er eiginlega ekki annað hægt en að bjóða ykkur að gleðjast með okkur.
Í heila viku verður
PS.
Það eru alltaf einhverjir svekktir yfir því að hafa keypt uppskriftir korteri fyrir svona tilkynningu. Ekki láta það skemma gleðina, hafðu frekar samband við okkur og fáðu gjafabréf upp á afsláttinn sem þú fékkst ekki.
]]>
Skoðaðu merkin með því að smella hér.
Áður var ódýrasti sendingarmöguleikinn 990 króna sending á pakka.
Nú er mögulegt að fá merkin póstsend sem "Almenn bréf innanlands" og borga aðeins 200 kr fyrir.
Þessi valmöguleiki birtist bara þegar eingöngu merki eru í körfunni. Um leið og það er garn eða aðrar vörur með í körfunni þá er bréfasending ekki lengur möguleiki.
Það kemur fullt af flottum merkjum inn á síðuna hjá okkur mjög fljótlega svo endilega fylgist vel með.
]]>Dagana 25. og 26. apríl verður lagerinn lokaður á Suðurlandsbrautinni vegna flutninganna.
Frá og með 29. apríl verður lagerinn staðsettur í Vatnagörðum 22, 104 Reykjavík.
Húsnæðið er mun hentugra að öllu leyti, aðgengi er mjög gott og nóg er af bílastæðum. Við erum mjög spennt fyrir þessum tímamótum, og höfum fulla trú á vinum okkar hjá Gorilla House.
Það eru fleiri skemmtilegar breytingar í farvatninu varðandi lagerinn okkar sem verður gaman að kynna fyrir ykkur þegar nær dregur.
Smelltu hér til að sjá nýju staðsetninguna á kortavef JÁ.
]]>
18. apríl. Fimmtudagur. Skírdagur - LOKAÐ
19. apríl. Föstudagurinn langi - LOKAÐ
22. apríl. Mánudagur. Annar í Páskum. Opið er fyrir að sækja pantanir milli kl.13.00-15.00.
25. apríl. Fimmtudagur. Sumardagurinn fyrsti - LOKAÐ
26. apríl. Föstudagur - Lagerinn okkar flytur í nýtt og betra húsnæði með betra aðgengi og fleiri bílastæðum mánudaginn 29. apríl.
]]>