FLÓKI PEYSA
FLÓKI PEYSA
FLÓKI PEYSA
FLÓKI PEYSA
FLÓKI PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, FLÓKI PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, FLÓKI PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, FLÓKI PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, FLÓKI PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, FLÓKI PEYSA

FLÓKI PEYSA

Petit Knitting
Listaverð
1.100 kr
Tilboð
1.100 kr
Listaverð
Uppselt
Unit price
per 

FLÓKI er skemmtileg afþreying og þér leiðist sko ekki við að prjóna hana.

FLÓKA er bæði hægt að prjóna sem opna peysu (fram og til baka) eða sem heila peysu (í hring). Mynstur í opnu útgáfunni er prjónað bæði á réttu og röngu. Það er örlítið tímafrekara en ekki eins flókið og það hljómar og heldur manni við efnið. Gataúrtakan er einnig skemmtileg og gerir lokasprettinn áhugaverðan og fjölbreyttan. Mæli svo sannarlega með þessu verkefni. Svo er hún líka svo falleg á litlum krúttum.

Með því að ýta á ADD TO CART getur þú keypt uppskriftirnar að þessu fallega setti. 

Efni:
Smart frá Sandnes garn en hægt er að nota allt garn sem passar fyrir prjóna nr. 4 – 4.5.

Stærðir og magn:
0-6 mánaða: 150gr (3 gráar og 1 blá)
6-12 mánaða: 250gr (4 gráar og 1 blá)
1-2 ára: 250gr (fjórar gráar og ein blá)
2-4 ára: 300gr (Fimm gráar og ein blá)
4-6 ára: 300gr (fimm gráar og ein blá)
6-8 ára: 400gr (sex gráar og 2 bláar)
8-9 ára: 400gr (sex gráar og 2 bláar)
9-10 ára: 500gr (sjö gráar og 3 bláar)
(höfundur ábyrgist ekki að allir prjónarar noti sama magn af garni svo þetta er einungis viðmið)

Það sem þarf:
- hringprjónar nr. 4 og nr. 4,5
- Sokkaprjónar nr. 4 og nr. 4,5
- tölur
- nál til frágangs og til að sauma tölurnar í
- prjónamerki

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Hentar ekki að greiða með korti? Sendu okkur póst á pk@petitknitting.is eða skilaboð á FB og við getum boðið þér að millifæra upphæðina. Uppskriftina færðu svo senda frá okkur.