Prjónauppskrift frá Stroff - Silfá húfa
Prjónauppskrift frá Stroff - Silfá húfa
Prjónauppskrift frá Stroff - Silfá húfa
Prjónauppskrift frá Stroff - Silfá húfa
  • Load image into Gallery viewer, Prjónauppskrift frá Stroff - Silfá húfa
  • Load image into Gallery viewer, Prjónauppskrift frá Stroff - Silfá húfa
  • Load image into Gallery viewer, Prjónauppskrift frá Stroff - Silfá húfa
  • Load image into Gallery viewer, Prjónauppskrift frá Stroff - Silfá húfa

SILFÁ HÚFA

STROFF
Listaverð
850 kr
Tilboð
850 kr
Listaverð
Uppselt
Unit price
per 

Silfá er prjónuð neðan frá og upp og í hring. Mynstur er perluprjón og sniðið er þannig að húfan kemur aðeins niður á ennið að framan og vel fyrir eyrun. Húfan er ekki flókin í framkvæmd en það þarf að vera með öll ljós kveikt á meðan verið er að prjóna hana 😊 Það er auðvelt að ruglast ef maður fer t.d. að horfa á sjónvarpið eða tala í símann – þið skiljið hvað ég á við.

Þessi uppskrift er einnig partur af settinu Mýkra

Efni
Katia Merino 100% eða Feeling frá Lana Gatto eða Merinocot frá Lana Gatto.
Nota þarf prjóna 4 fyrir Merino 100% og Feeling en prjóna 3,5 fyrir Merinocot til að fá rétta prjónfestu.

Stærð Feeling eða Merino 100% Mohair
Nýburi 50 g 25 g
3-6 mán 50 g 25 g
6-12 mán 50 g 25 g
1-2 ára 100 g 25 g
2-4 ára 100 g 25 g
4-8 ára 100 g 25 g


Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 4 (40 cm langir)
- Sokkaprjónar nr. 4
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Ummál húfu
Nýburi: 33 cm
3-6 mán: 35 cm
6-12 mán: 38 cm
1-2 ára: 40 cm
2-4 ára: 42 cm

Prjónfestan í þessari húfu er sú að 23 lykkjur á prjóna nr. 4 gera 10 cm með Merino 100% og Feeling, en nota þarf prjóna 3,5 fyrir Merinocot til að fá rétta prjónfestu.

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu. 

Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.