Umsagnir prjónara
Halló heimur fyrir krakka
Þessi uppskrift er á íslensku og er nú loksins komin í stærri stærðum!
Með því að ýta á ADD TO CART getur þú keypt þessa fallegu uppskrift.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður og fram og til baka með mynstri í bakstykki.
Efni:
Peysan er prjónuð með einum þræði af Bamboo Wool og einum þræði af Mohair frá Icewear EÐA Heavy Merino frá KFO.
Einnig hægt að nota:
- Katia Merino Sport (Föndra)
- Special Aran With Wool (Amma Mús)
- Puno frá Rauma (Amma mús)
- Mitu frá Rauma með 1 þræði af Mohair (Amma mús)
- Katia Merino 100% með 1 þræði af Mohair (Föndra)
Stærðir og magn af garni:
Stærð | Bamboo wool | Silk Mohair |
6-12 mán | 200 g (400m) | 50 g |
1-2 ára | 200 g (400m) | 50 g |
2-4 ára | 250/300 g (500-600m) | 75 g |
4-6 ára | 300 g (600m) | 75 g |
6-8 ára | 350 g (700m) | 100 g |
8-12 ára | 400 g (800m) | 100 g |
Stærð | Heavy Merino frá KFO |
6-12 mán | 200 g |
1-2 ára | 200 g |
2-4 ára | 200-250 g |
4-6 ára | 250 g |
6-8 ára | 300 g |
8-12 ára | 350 g |
Það sem þarf:
- Hringprjónn nr. 5 og 5.5 (60 eða 80 cm langur)
- Sokkaprjónar nr. 5 og 5.5
- Nál til frágangs
- 8 hringlaga prjónamerki
- Tölur (15-20 mm)
Stærð | Ummál bolur | Lengd bolur, frá handvegi |
6-12 mán | 59 cm | 18 cm |
1-2 ára | 63.5 cm | 20 cm |
2-4 ára | 69.5 cm | 22 cm |
4-6 ára | 74 cm | 26 cm |
6-8 ára | 78.5 cm | 30 cm |
8-12 ára | 83 cm | 35 cm |
Prjónfestan í þessari uppskrift er sú að 18 lykkjur á prjóna nr. 5.5 gera 10 cm.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Hentar ekki að greiða með korti? Sendu okkur póst á pk@petitknitting.is eða skilaboð á FB og við getum boðið þér að millifæra upphæðina. Uppskriftina færðu svo senda frá okkur.