Umsagnir prjónara
KRUMMI er prjónuð ofan frá og niður og fram og til baka.
KRUMMI er stóra útgáfan af FÖRUM HEIM peysunni. Uppskriftin gefur stærri stærðir en litla peysan, stærri prjóna og grófara garn.
Efni
Katia Merino 100% eða Feeling frá Lana Gatto eða Merinocot frá Lana Gatto.
Varðandi prjónfestu:
Nota prjóna nr. 4 fyrir Merino 100% og Feeling, en prjóna 3,5 fyrir Merinocot.
Stærð | Magn |
6-12 mán | 200 g |
1-2 ára | 250 g |
2-4 ára | 300 g |
4-6 ára | 350 g |
6-8 ára | 400 g |
8-10 ára | 500 g |
Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 4 (60/80 cm)
- Hringprjónar nr. 3.5 (60 eða 80 cm, fyrir kantinn)
- Sokkaprjónar nr. 4
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
- Tölur
Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
6-12 mán: 19 cm
1-2 ára: 22 cm
2-4 ára: 25 cm
4-6 ára: 29 cm
6-8 ára: 33 cm
8-10 ára: 36 cm
Ummál á bol
6-12 mán: 59 cm
1-2 ára: 65 cm
2-4 ára: 68 cm
4-6 ára: 75 cm
6-8 ára: 80 cm
8-10 ára: 85 cm
Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
6-12 mán: 18 cm
1-2 ára: 20 cm
2-4 ára: 23 cm
4-6 ára: 27 cm
6-8 ára: 32 cm
8-10 ára: 36 cm
Ummál á ermum
6-12 mán: 20 cm
1-2 ára: 21,5 cm
2-4 ára: 22,5 cm
4-6 ára: 24 cm
6-8 ára: 25,5 cm
8-10 ára: 26,5 cm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 23 lykkjur á prjóna nr. 4 gera 10 cm með Merino 100% og Feeling en nota þarf prjóna 3,5 fyrir Merinocot til að fá sömu prjónfestu.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.