Umsagnir prjónara
MYRRA er prjónuð ofan frá og niður og fram og til baka. Kanturinn á peysunni er prjónaður með peysunni en ekki eftir á. Kanturinn er prjónaður með garðaprjóni. Kaðlar eru samtals fjórir – einn í hverjum laska.
Efni:
Merino ull frá Sandnes garn (litur: Honning gul 2325) en hægt er að nota allt garn sem passar fyrir prjóna nr. 3.5 - 4. Þetta garn fæst í Fjarðarkaup og í Tinnu Nýbýlavegi.
Stærðir og magn af garni:
6-12 mán:3-4 dokkur (150-200gr)
1-2 ára: 4-5 dokkur (200-250gr)
2-4 ára: 6-7 dokkur (300-350gr)
4-6 ára: 8 dokkur (400gr)
6-8 ára: 9 dokkur (450gr)
8-10 ára: 10-11 dokkur (500-550gr)
Það sem þarf:
- hringprjónar nr. 4 (60 sm)
- auka hringprjón til að geyma lykkjur á (þarf ekki, hægt að nota bandspotta)
- Sokkaprjónar nr. 4
- tölur (15 mm)
- nál til frágangs og til að sauma tölurnar í
- prjónamerki
- Kaðalprjón eða einn sokkaprjón til að snúa kaðli
Prjónfesta:
24 lykkjur á prjóna nr. 4 = 10 sm
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Hentar ekki að greiða með korti? Sendu okkur póst á pk@petitknitting.is eða skilaboð á FB og við getum boðið þér að millifæra upphæðina. Uppskriftina færðu svo senda frá okkur.