Umsagnir prjónara
STORMUR er prjónuð neðan frá og upp og fram og til baka. Kanturinn er prjónaður með í peysunni svo ekki þarf að gera hann eftir á. Peysan er auðveld að prjóna svo byrjendur sem og lengra komnir eiga að geta prjónað þessa fallegu peysu 😊
Með því að ýta á ADD TO CART getur þú keypt þessa fallegu uppskrift.
Efni:
Smart frá Sandnes garn en hægt er að nota allt garn sem passar fyrir prjóna nr. 3.5 – 4.
Stærðir og magn:
0-6 mánaða: 150gr (þrjár dokkur)
6-12 mánaða: 200gr (fjórar dokkur)
1-2 ára: 200 - 250gr (fjórar - fimm dokkur)
2-3 ára: 250gr (fimm dokkur)
3-4 ára: 300gr (sex dokkur)
4-5 ára: 300gr (sex dokkur)
5-6 ára: 300gr (sex dokkur)
6-7 ára: 350gr (sjö dokkur)
7-8 ára: 350-400gr (sjö – átta dokkur)
Það sem þarf:
- hringprjónar nr. 4 og nr. 4,5
- Sokkaprjónar nr. 4 og nr. 4,5
- tölur
- nál til frágangs og til að sauma tölurnar í
- prjónamerki
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Hentar ekki að greiða með korti? Sendu okkur póst á pk@petitknitting.is eða skilaboð á FB og við getum boðið þér að millifæra upphæðina. Uppskriftina færðu svo senda frá okkur.