Umsagnir prjónara
Gallinn var hannaður fyrir aðdáendur Ævi-línunnar en margir höfðu sent okkur skilaboð og beðið fallega um galla í þessari línu. Við gátum ekki sagt nei og sjáum ekkert eftir því að hafa skellt í þennan fallega galla.
Hann er prjónaður ofan frá og niður, fram og til baka til að byrja með, með gataútaukningu í berustykki en svo tengdur í hring fyrir neðan mitti. Ermar og skálmar eru prjónaðar í hring með sléttu prjóni. #ævilína
Efni
Feeling frá Lana Gatto
Einnig hægt að nota
- Merino 100% frá Katia á sömu prjónastærð og gefin er upp í uppskrift
- Merinocot frá Lana Gatto á prjónastærð 3,5
Stærðir og magn af garni
Newborn | 150 gr |
3-6 mánaða | 200 gr |
6-12 mánaða | 200 gr |
1-2 ára | 250 gr |
2-4 ára | 300 gr |
Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 4, 60 eða 80 cm langur
- Sokkaprjónar nr. 4
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
- Tölur
Lengd á bol, frá handvegi
Newborn: 22 cm
3-6 mánaða: 25 cm
6-12 mánaða: 27 cm
1-2 ára: 33 cm
2-4 ára: 37 cm
Ummál á bol
Newborn: 45 cm
3-6 mánaða: 51 cm
6-12 mánaða: 54 cm
1-2 ára: 60 cm
2-4 ára: 67 cm
Ummál á skálmum
Newborn: 22 cm
3-6 mánaða: 24 cm
6-12 mánaða: 26 cm
1-2 ára: 28 cm
2-4 ára: 31 cm
Lengd á ermum (með stroffi)
Newborn: 16 cm
3-6 mánaða: 19 cm
6-12 mánaða: 22 cm
1-2 ára: 25 cm
2-4 ára: 28 cm
Ummál á ermum
Newborn: 16 cm
3-6 mánaða: 18 cm
6-12 mánaða: 19 cm
1-2 ára: 21 cm
2-4 ára: 23 cm
Lengd á skálmum (með stroffi)
Newborn: 17 cm
3-6 mánaða: 20 cm
6-12 mánaða: 26 cm
1-2 ára: 32 cm
2-4 ára: 36 cm
Prjónfestan í þessum galla er sú að 24 lykkjur á prjóna nr. 4 gera 10 cm með því að nota Feeling frá Lana Gatto.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.