Umsagnir prjónara
Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring með laskútaukningu og mynstri í ermum.
Þessi uppskrift er snúin: Getur rifið í hjá þeim reynsluminnstu en þeir sem eru vanari rúlla henni upp án þess að blikna.
#sandarpeysa
Efni
Lana Gatto Maxi Soft
Einnig hægt að nota Katia Merino Sport eða Nuovo Irlanda frá Lana Gatto.
Stærðir | Garnmagn |
XS | 500 gr |
S | 550 gr |
M | 600 gr |
L | 650 gr |
XL | 700 gr |
2XL | 750 gr |
Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 5.5 (100/120 cm langan fyrir stroff á bol)
- Hringprjónn nr. 5.5 (40 cm langan fyrir hálsmál)
- Hringprjónar nr. 6 (40, 80 og 100/120 cm langir)
- Sokkaprjónar nr. 5.5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Lengd bolur, frá handvegi
XS: 29 cm
S: 30 cm
M: 31 cm
L: 33 cm
XL: 35 cm
2XL: 37 cm
Ummál bolur
XS: 105 cm
S: 110 cm
M: 115 cm
L: 120 cm
XL: 125 cm
2XL: 130 cm
Lengd ermi, frá handvegi
XS: 37 cm
S: 39 cm
M: 41 cm
L: 43 cm
XL: 45 cm
2XL: 47 cm
Ummál ermi
XS: 35 cm
S: 39 cm
M: 41 cm
L: 44 cm
XL: 46 cm
2XL: 49 cm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 16 lykkjur á prjóna nr. 6 gera 10 cm með því að nota Lana Gatto Maxi Soft.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.