Umsagnir prjónara
Una krakkapeysa er gefin út í samstarfi stroff.is og Sölku Sólar, en Sjöfn og Salka unnu hugmyndavinnuna og uppskriftina í sameiningu. Peysan er bara ein af mörgum uppskriftum í Unu línunni okkar.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring. Ermar eru prjónaðar í hring og með sléttu prjóni.
Efni
Katia Prime Merino
- www.stroff.is/garn
Einnig er hægt að nota Katia Merino 100%, en huga þarf að prjónfestu.
Stærðir og magn af garni
Stærð | Magn |
6-12 mánaða | 200 gr |
1-2 ára | 250 gr |
2-4 ára | 250 - 300 gr |
4-6 ára | 300 - 350 gr |
6-8 ára | 350 gr |
Það sem þarf
- hringprjónn nr. 4,5 (40 sm og 60/80 sm langir)
- sokkaprjónar nr. 4,5
- sokkaprjónar nr. 4 (fyrir stroff á ermum)
- nál til frágangs
- prjónamerki
Lengd á bol, frá handvegi
6-12 mán: 20 sm
1-2 ára: 24 sm
2-4 ára: 28 sm
4-6 ára: 34 sm
6-8 ára: 38 sm
Ummál á bol
6-12 mán: 58 sm
1-2 ára: 64 sm
2-4 ára: 69 sm
4-6 ára: 74 sm
6-8 ára: 78 sm
Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
6-12 mán: 20 sm
1-2 ára: 24 sm
2-4 ára: 27 sm
4-6 ára: 32 sm
6-8 ára: 35 sm
Ummál á ermum
6-12 mán: 20 sm
1-2 ára: 21 sm
2-4 ára: 22.5 sm
4-6 ára: 24 sm
6-8 ára: 25 sm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 22 lykkjur á prjóna nr. 4,5 gera 10 sm með því að nota Prime Merino frá Katia.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.