Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka með broken rib mynstri.
Peysan er með V laga hálsmáli.
Efni
Maxi Soft eða Nuovo Irlanda frá Lana Gatto eða Merino Aran eða Merino Sport frá Katia.
Einnig væri hægt að nota Special Aran with Wool, garnið í 400 gramma dokkunum.
Stærð | Maxi Soft |
XS | 550 g |
S | 600 g |
M | 650 g |
L | 700 g |
XL | 750 g |
2XL | 800 g |
Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 5.5 (100 cm fyrir stroff á bol og til þess að prjóna upp kantinn)
- Hringprjónn nr. 6 (100/120 cm langir)
- Hringprjónn nr. 6 (40 cm langir fyrir ermar)
- Hringprjónn nr. 5.5 (40 cm fyrir stroff á ermum)
- 4 til 5 tölur (fer eftir sídd á peysu)
- Prjónamerki
- Nál til frágangs
Mál
Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
XS: 25 cm
S: 27 cm
M: 29 cm
L: 31 cm
XL: 33 cm
2XL: 35 cm
Ummál á bol
XS: 100 cm
S: 109 cm
M: 115 cm
L: 120 cm
XL: 125 cm
2XL: 136 cm
Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
XS: 37 cm
S: 38 cm
M: 40 cm
L: 42 cm
XL: 45 cm
2XL: 47 cm
Ummál á ermum
XS: 41 cm
S: 44 cm
M: 46 cm
L: 49 cm
XL: 51 cm
2XL: 54 cm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 16 lykkjur á prjóna nr. 6 gera 10 cm með því að nota Maxi Soft frá Lana Gatto.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.