Þessi prjónauppskrift að Ynju sokkum fyrir fullorðna er prjónuð í hring með mynstri í kringum ökkla og ofan á rist.
Slétt prjón á il og í úrtöku. Litaskiptingin er frekar frjálsleg og hægt að hafa hana allskonar og hvernig sem er.
Efni
Katia Merino 100%.
Einnig er hægt að nota Prime Merino frá Katia.
Stærð | Litur 1 | Litur 2 | Litur 3 | Litur 4 |
34-36 | 50 g | 50 g | 50 g | 50 g |
37-39 | 50 g | 50 g | 50 g | 50 g |
40-42 | 50 g | 50 g | 50 g | 50 g |
43-46 | 50 g | 50 g | 50 g | 50 g |
Það sem þarf
- Sokkaprjónar nr. 4
- Nál til frágangs
Mál
Ummál um ökkla
34-36: 18 cm
37-39: 19,5 cm
40-42: 20,5 cm
43-46: 20,5 cm
Ummál um rist
34-36: 18 cm
37-39: 19,5 cm
40-42: 20,5 cm
43-46: 20,5 cm
Prjónfestan í þessum sokkum er sú að 23 lykkjur á prjóna nr. 4 gera 10 cm með því að nota Merino 100% frá Katia.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.