{"product_id":"prjon-er-snilld","title":"Prjón er snilld!","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónabókin \"Prjón er snilld!\" inniheldur 63 prjónauppskriftir. \u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞar af eru 22 uppskriftir af fullorðinspeysum, 14 uppskriftir af barnapeysum, 6 uppskriftir af buxum og göllum á börn, 6 húfu-, vettlinga- og sokkauppskriftir og 4 ungbarnasett. Á myndunum hér á síðunni er hægt að skoða efnisyfirlitið. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er samansafn af vinsælustu uppskriftum Stroff frá upphafi. \u003cbr\u003eUppskriftirnar hafa allar komið út áður á www.stroff.is, en nú er einstakt tækifæri til að eignast þær allar á þessu fallega innbundna formi á frábæru verði. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er 314 blaðsíður, í áberandi fallegu umbroti, myndskreytt með ótrúlega fallegum ljósmyndum Eyglóar Gísladóttur og mun sóma sér vel á kaffiborðum allra landsmanna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundar bókar er Sjöfn Kristjánsdóttir. \u003cbr\u003eÚtgefandi er Sögur útgáfa.\u003cbr\u003eLjósmyndir tók Eygló Gísladóttir.\u003cbr\u003eÚtlit og uppsetningu bókarinnar hannaði Þórhildur L. Sigurðardóttir. \u003c\/p\u003e\n\u003cdiv style=\"padding-left: 30px;\"\u003e\u003cem\u003eAð prjóna er ekki bara skemmtileg iðja sem oftast gefur af sér hlýlegar og fallegar flíkur heldur veitir prjónið öllum þeim sem það stunda mikla gleði í hjarta, sköpunarkraft í brjóst og einstaka hugarró. Prjón er snilld!\u003c\/em\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv style=\"padding-left: 30px;\"\u003e\u003cem\u003e\u003c\/em\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv style=\"padding-left: 30px;\"\u003e\u003cem\u003e\u003c\/em\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv style=\"padding-left: 30px;\"\u003e\u003cem\u003eÞetta allt veit Sjöfn Kristjánsdóttir, sem í þessari dásamlegu bók hefur tekið saman allar sínar bestu prjónauppskriftir og þær sem sem eru í hve mestu uppáhaldi hjá henni. Hér má finna glæsilegar flíkur fyrir fullorðna, húfur, peysur, buxur, vettlinga og sokka fyrir börn, á öllum aldri og hlýleg heimferðarsett fyrir þau yngstu. \u003c\/em\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv style=\"padding-left: 30px;\"\u003e\u003cem\u003e\u003c\/em\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv style=\"padding-left: 30px;\"\u003e\u003cem\u003e\u003c\/em\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cdiv style=\"padding-left: 30px;\"\u003e\u003cem\u003eSjöfn ásamt Sölku Sól gaf út metsölubókina UNU PRJÓNABÓK og líkt og í henni er hér lögð rík áhersla á að uppskriftirnar séu á mannamáli, aðgengilegar öllum þeim reynsluminni í prjónaskap sem og reynsluboltum. \u003c\/em\u003e\u003c\/div\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEf um einhverjar leiðréttingar á bókinni verður að ræða verða þær aðgengilegar \u003ca href=\"https:\/\/stroff.is\/pages\/prjonabok-stroff-leidrettingar\"\u003ehér.\u003c\/a\u003e \u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"STROFF","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":41162428121259,"sku":"","price":4194.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1834\/4929\/products\/uUcCi5iO.png?v=1636469031","url":"https:\/\/stroff.is\/en\/products\/prjon-er-snilld","provider":"STROFF","version":"1.0","type":"link"}