
Prjónanámskeið (tvö kvöld) fyrir þá sem kunna að fitja upp og prjóna slétt og brugðið.
Við ætlum að læra að lesa einfalda uppskrift af vettlingum eða sokkum og að prjóna á sokkaprjóna (í hring). Á seinna kvöldinu verður farið í hælaprjón og/eða þumalprjón. einnig ætlum við að læra að ganga frá endum.
- Dagsetning: 12. og 4. september 2022, frá 18-21
- Staðsetning: Verzlun STROFF, Skipholti 25
- Hámarks fjöldi: 10 manns
- Lágmarks fjöldi: 6 manns
- Samtals: 3 klst
- Innifalið: Kennsla og fræðsluefni
Kennarar verða Sjöfn Kristjánsdóttir, eigandi, hönnuður og hugmyndasmiður Stroff, og Leonie Karn, þýðandi, prjónari og starfsmaður hjá Stroff.
- Þær verða báðar til staðar allan tímann svo haldið verður vel utan um alla þátttakendur.
Þátttakendur þurfa að hafa með sér: Garn og sokkaprjóna (stærð og grófleiki sem hentar verkefni), prjónamerki og nál til frágangs.
Þátttakendur fá 20% afslátt í verzlun. Hægt er að nýta sér það á námskeiðsdegi.
Verð: 15.900 kr. Þeir sem voru á grunnnámskeiði fá 15% afslátt af þessu námskeiði. Þið fáið afsláttarkóða með því að senda tölvupóst á sjofn@stroff.is.
Aðeins 10 sæti eru í boði, og fer skráning fram með því að setja námskeiðið í körfu og ganga frá greiðslu. Ef hámarksfjöldi næst ekki heimila kennarar að fella niður námskeið og endurgreiða námskeiðið til þeirra sem hafa skráð sig.
* Forföll skal boða í síðasta lagi klukkan 12 þann 10. sept 2022 til að eiga möguleika á endurgreiðslu.