
Prjónanámskeið þar sem þátttakendum verður kennt að prjóna barnahúfur
- Þátttakendur þurfa að kunna að fitja upp og prjóna slétt og brugðið.
- Hver og einn ákveður hvort hann vill prjóna Vök, Veru, Vöku eða Silfá.
- Kennt verður þriðjudaginn 24. sept frá klukkan 19:30 - 22
- Staðsetning: Mjög hugguleg aðstaða í miðbæ Hafnarfjarðar. Staðsetning verður send á þátttakendur.
- Hámark 15 manns per námskeið, lágmark 10.
- Náist ekki lágmarksþátttaka verður námskeið fellt niður og endurgreitt.
- Samtals: 2.5 klst
- Innifalið: Útprentuð uppskrift, skrautmerki og veitingar
Kennarar verða Sjöfn Kristjánsdóttir, eigandi, hönnuður og hugmyndasmiður Stroff, og Andrea Ida Jónsdóttir, leikkona, áhrifavaldur og prufupjónari hjá Stroff.
- Þær verða báðar til staðar allan tímann svo haldið verður vel utan um alla þátttakendur.
Þátttakendur þurfa að hafa með sér: Garn, prjóna, prjónamerki, yfirstrikunarpenna, venjulegan penna, nál til frágangs
Verð: 6.500 kr
Aðeins 15 sæti í boði, og fer skráning fram með því að setja námskeiðið í körfu og ganga frá greiðslu.
* Forföll skal boða í síðasta lagi klukkan 12 þann 21. september til að eiga möguleika á endurgreiðslu.