
Umsagnir prjónara
Prjónanámskeið þar sem þátttakendum verður kennt að prjóna hina ofurvinsælu peysu Kára.
Námskeiðið hefst mánudaginn 21. október.
- Þátttakendur þurfa að kunna að fitja upp og prjóna slétt og brugðið.
- Flíkin verður prjónuð frá upphafi til enda á námskeiðinu og með heimavinnu.
- Kennt verður 1x í viku, á mánudögum, frá klukkan 19:00 - 21:30
- Dagsetningar: 21. okt, 28. okt, 4. nóv, 11. nóv & 18. nóv.
- Staðsetning: Mjög hugguleg aðstaða í miðbæ Hafnarfjarðar. Staðsetning verður send á þátttakendur.
- Hámark 15 manns per námskeið, lágmark 8.
- Náist ekki lágmarksþátttaka verður námskeið fellt niður og endurgreitt.
- Samtals: 12.5 klst
- Innifalið: Útprentuð uppskrift, skrautmerki og veitingar
Kennarar verða Sjöfn Kristjánsdóttir, eigandi, hönnuður og hugmyndasmiður Stroff, og Andrea Ida Jónsdóttir, leikkona, áhrifavaldur og prufupjónari hjá Stroff.
- Þær verða báðar til staðar allan tímann svo haldið verður vel utan um alla þátttakendur.
Þátttakendur þurfa að hafa með sér: Garn, prjóna, prjónamerki, yfirstrikunarpenna, venjulegan penna, nál til frágangs
Þátttakendur fá afslátt af öllum vörum í netverslun www.stroff.is
Verð: 28.500 kr
Aðeins 15 sæti í boði, og fer skráning fram með því að setja námskeiðið í körfu og ganga frá greiðslu.
Styrkir frá stéttarfélögum
Mörg stéttarfélög veita félagsmönnum námskeiðs- eða tómstundastyrki.
Við gefum út kvittanir fyrir slíkar umsóknir.
Smelltu hér til lesa umsagnir frá ánægðum þátttakendum í námskeiðum Stroff.
* Forföll skal boða í síðasta lagi klukkan 12 þann 18. október til að eiga möguleika á endurgreiðslu. Eftir þann tíma verður aðeins boðin 50% endurgreiðsla.