{"product_id":"restar-afgangapeysa","title":"Restar afgangapeysa","description":"\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cstrong\u003eRestar\u003c\/strong\u003e er prjónuð neðan frá og upp með „drop shoulders“ og box sniði. Bolurinn er stuttur og víður og ermar víðar. \u003cbr\u003e\u003cbr\u003ePeysurnar á myndum eru allar prjónaðar úr afgöngum. Ég mæli með að nota afganga í þessa peysu og leika ykkur með samsetningu á litum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\"\u003e\u003cspan\u003e\u003cstrong\u003eErfiðleikastig\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003e2 - snúin, en ætti að henta flestum þeim sem kunna að prjóna peysur\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cimg\u003e\u003cimg src=\"https:\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1834\/4929\/files\/restar_staerdir.png?v=1794238829\" alt=\"\"\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cimg\u003e\u003cstrong\u003eÞað sem þarf\u003cbr\u003e\u003c\/strong\u003e- Hringprjónar nr. 7 (40 og 100 cm)\u003cbr\u003e- Hringprjónar nr. 5.5 (40 cm \/ 60 cm fyrir þá sem vilja fyrir hálsmál)\u003cbr\u003e- Nál til frágangs\u003cbr\u003e- Prjónamerki 3 stk\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónfesta\u003cbr\u003e\u003c\/strong\u003e14 lykkjur og 18 umferðir = 10 x 10 cm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÁður en þú byrjar\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eListin að leika sér með afganga\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eAð vinna með afganga er ekki bara hagstætt og gott fyrir umhverfið heldur er það líka svo ótrúlega skemmtilegt! Ég mæli eindregið með því að nota afganga í þessa peysu. Ef garnið er misgróft er alltaf hægt að bæta aukaþræði eða þráðum við fínni þræðina. Svo má líka alveg kaupa einn og einn lit til þess að fá hina fullkomnu „afgangapeysu“!\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLitasamsetningar\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eÞar sem þessi peysa byggist aðallega á röndum þá er hægt að leika sér mikið með liti og hafa rendurnar í mismunandi þykktum. Í þeim pörtum sem notaðir eru tveir litir þarf að hafa kontrastinn á milli lita þannig að mynstrið sjáist.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eVal á stærð á peysu\u003c\/strong\u003e\u003cbr\u003eStærðirnar snúa bæði að lengd og ummáli á peysunni. Sumir eru langir og grannvaxnir með lítil brjóst á meðan aðrir eru lágvaxnir, þéttari í vexti og með stór brjóst (og svo er allt þar á milli).\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÉg mæli með að skoða vel ummálið á peysunni (mæla yfir breiðasta partinn af búknum sem er annað hvort brjóst eða mjaðmir) og hafa svo lengdina eftir þörfum. Það sama á við um lengd á ermum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞegar greiðsla hefur verið framkvæmd er\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cu\u003evísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax\u003c\/u\u003e. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals.\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003cu\u003eHjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.\u003c\/u\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSmelltu\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ca aria-describedby=\"a11y-external-message\" title=\"Leiðbeiningar sækja prjónauppskrift\" href=\"https:\/\/petitknitting.is\/pages\/leidbeiningar\"\u003ehér\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003c\/a\u003efyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"STROFF","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48566557671595,"sku":null,"price":720.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/1834\/4929\/files\/1-forsida_285b1e08-12f6-43a2-bc91-e1a7a3b8c761.jpg?v=1794239064","url":"https:\/\/stroff.is\/products\/restar-afgangapeysa","provider":"STROFF","version":"1.0","type":"link"}