Prjónaveski fyrir hringprjóna með útskiptanlegum snúrum (snúrur og prjónastubba).
Ótrúlega handhægt og fyrirferðalítið veski.
- 12 hólf fyrir hringprjónastubba
- Hinu megin á veskinu eru svo þrjú hólf með rennilás þar sem þú getur geymt snúrurnar og önnur minni tól sem fylgja þér og verkefnunum.
- Tveir litlir vasar í miðju veskisins geta svo geymt t.d. nál og "lykilinn" til að herða snúrurnar á prjónana.
Þegar þú ert búin/nn að raða í veskið brýturðu það fyrst í tvennt og svo í þrennt.
Svo festirðu þetta saman með fallegu leðurólinni. Efir stendur þá veski sem er ca. 12x15 sm og geymir dýrmætu tólin þín.
Veskið geymirðu svo í fallegu töskunni þinni frá Twig & Horn sem þú keyptir líka hér.
Mál
Ósamanbrotið: 36x30 sm
Samanbrotið: 12x15 sm
Efni
Veskið sjálft er úr 85% ull og 15% nylon.
Ólin er úr leðri.