Að þvo fullprjónaða flík

Að þvo fullprjónaða flík

Loksins! Peysan er tilbúin, búið er að ganga frá síðustu endunum og festa tölurnar – fer maður þá strax í hana? Eða er betra að þvo hana fyrst?

Í mörgum af okkar uppskriftunum mælum við með því að þvo nýprjónaða flík áður en hún er notuð eða gefin. Fáir vita þó af hverju. Af ótta við að flíkin teygist, þæfist eða líti strax út fyrir að vera notuð er þessu skrefi oft sleppt. Hér útskýrum við af hverju við þvoum alltaf hverja flík áður en hún er notuð og hvað þarf að hafa í huga.

Prjónaflík þvegin – fyrir og eftir

Af hverju ætti að þvo fullprjónaða flík?

Ástæðurnar eru margar. Garn fer um margar hendur áður en það er prjónað. Í geymslu í búðinni og heima safnar það ryki og óhreinindum og er oft handleikið, þreifað á því og það lagt aftur á sinn stað. Við prjónaskapinn bætast við sviti og fita af höndunum (svo ekki sé minnst á kexmylsnu eða kaffislettur...). Litað garn inniheldur líka oft umframlit sem skolast úr í fyrsta þvotti – það heillar augað hvernig vatnið lítur út eftir þvottinn! Það eitt væri næg ástæða til að þvo flíkina... en það er meira:

Þegar flík fær að liggja í smá stund í vatni, slaknar á trefjunum og gerir prjónið mun jafnara. Sumt garn hreinlega blómstrar í vatni.

Prjónaflík þvegin – fyrir og eftir

Munurinn fyrir og eftir þvott er sérstaklega áberandi í gatamynstrum, sem opnast ekki almennilega fyrr en í þvottinum sem og á hnappalistum, pífum eða úrtökum á húfum. það sem var ójafnt og krumpað fyrir þvott má slétta og móta þegar flíkin er lögð til þerris.

Prjónaflík þvegin – fyrir og eftir

Það má í raun segja að prjónaflík sé aldrei tilbúin fyrr en hún hefur verið þvegin eða pressuð, fyrst þá hefur hún náð endanlegri lögun. Á endanum þarf að þvo flíkina svo það er best ef prjónarinn sér um fyrsta þvottinn. 

Prjónaflík þvegin – fyrir og eftir

Hvernig á að þvo prjónaflíkur?

Það er ekkert eitt svar sem gildir um allt – hver garnblanda hefur sínar þarfir. Skoðaðu þvottaleiðbeiningarnar á miðanum sem fylgir garninu og fylgdu þeim ef þú ert í vafa.

Nokkrar grunnreglur eru þó til: Því náttúrulegri sem trefjarnar eru, því viðkvæmari eru þær í þvotti. Það á sérstaklega við um silki, kasmír, mohair og alpakka, en líka merínóull sem er ekki superwash-meðhöndluð. Samkvæmt miðanum á yfirleitt aðeins að handþvo þetta garn – en gott ullarkerfi í þvottavél dugar þó yfirleitt líka. Hvað þarf að hafa í huga útskýrum við hér fyrir neðan.

Superwash-meðhöndlaða ull (margt merínógarn og blöndur með akrýl) er hins vegar betra að þvo beint í þvottavél því hún þolir venjulegt þvottakerfi. Gættu bara að ráðlögðu hitastigi á miðanum og vindu flíkina á lágum snúningi.

Handþvottur

Flestar minni flíkur (barnapeysur, húfur, vettlinga o.fl.) þvoum við einfaldlega í vaskinum. Svona er farið að:

Skref 1: Flíkin er fullprjónuð, búið að ganga frá öllum endum og festa tölur

Skref 1: Flíkin er fullprjónuð – búið er að ganga frá öllum endum og festa allar tölur.

Skref 2: Vaskurinn er fylltur af köldu vatni og ullarsápu og flíkin lögð í

Skref 2: Fylltu vaskinn fyrst af köldu eða volgu vatni og settu smá ullarsápu út í ef þú vilt (ef þú átt ekki ullarsápu dugar smá milt sjampó). Settu flíkina ekki í vatnið fyrr en vaskurinn er orðinn fullur – sumt fínt garn er viðkvæmt fyrir hitabreytingum. Láttu flíkina svo liggja í vatninu í 20 mínútur. Kreistu hana varlega inn á milli svo hún blotni vel.

Skref 3: Flíkinni er rúllað inn í þurrt handklæði

Skref 3: Taktu flíkina varlega upp úr vatninu. Athugaðu: því stærri sem flíkin er, því meiri hætta er á að hún gefi mikið eftir og stækki! Alls ekki taka hana upp á annarri erminni heldur meðhöndlaðu hana eins og nýfæddan hvítvoðung. Þrýstu umframvatninu varlega úr (alls ekki vinda flíkina, það getur aflagað flíkina).

Leggðu flíkina á þurrt handklæði og rúllaðu því þétt upp. Þannig drekkur handklæðið í sig mikið af vatninu.

Skref 4: Flíkin er lögð til á þurrt handklæði og látin þorna liggjandi

Skref 4: Rúllaðu flíkinni aftur út. Leggðu hana nú mjög vandlega til á öðru þurru handklæði. Gættu að smáatriðunum: leggðu hana slétta, togaðu hnappalistann og stroffin í rétt form, sléttaðu úr húfunni og eyrnaböndunum og svo framvegis. Hér fær flíkin endanlega lögun og enn er hægt að lagfæra smá útlitsgalla.

Láttu flíkina þorna liggjandi – alls ekki á herðatré eða á ofni, þá getur hún togast til eða fengið sýnileg brot. Láttu ljósar flíkur helst ekki þorna í beinu sólarljósi, hvít ull getur gulnað í sól.

Tilbúið!

Tilbúið!

Að þvo ull í þvottavél

Ef þvo á nýprjónaða flík í vél þarf að ganga úr skugga um að vélin sé nógu góð í það. Við mælum með að prjóna fyrst prufu og þvo hana á ullarprógrammi. Það er ekkert ömurlegra en þegar margra klukkustunda vinna fer í vaskinn því flíkin kemur allt of stór eða allt of lítil úr þvotti!

Gættu að hitastigi vatnsins. Við mælum með að hafa vatnið ekki heitara en 20°C – viðkvæmt garn getur þæfst við hærra hitastig. Einnig mælum við með að nota sérstaka ullarsápu því venjulegt þvottaduft getur skemmt trefjarnar – ef þú ert í vafa er fljótandi þvottaefni betra en duft. Ekki nota mýkingarefni!

Notaðu netapoka fyrir stærri flíkur. Það minnkar líkurnar á því að þær stækki við þvott. 

Gættu þess að vinda flíkurnar aðeins lítillega (ekki meira en 400 snúninga), sérstaklega stórar og þungar peysur. 

Með þessum ráðum ætti þvottur í þvottavél að ganga vel. Ef þú ert í vafa skaltu alltaf prófa vélina með gamalli eða lítilli flík eða prufustykki áður en þú þværð glænýju peysurnar þínar í henni!

Þegar þú hefur tekið flíkina úr vélinni (varlega, svo hún teygist ekki), leggurðu hana vandlega til á hreinu handklæði.

Má ull fara í þurrkara?

Stutta svarið er „eiginlega ekki“ – hún getur auðveldlega þæfst, hlaupið eða hnökrað. Sumt garn þolir þurrkarann betur en annað (og sumt er sérstaklega merkt sem þurrkaraþolið, t.d. Merino 100% og Merino Sport frá Katia), en við mælum ekki með þvíþ

Ef flík, jafnvel úr viðkvæmri ull, hefur teygst of mikið í þvotti getur þurrkarinn þó hjálpað:

Settu raka flíkina í þurrkarann með handklæði og láttu hann ganga á lágum hita. Fylgstu reglulega með svo flíkin hlaupi ekki of mikið. Opnaðu þurrkarann reglulega og kíktu á flíkina.

Þetta virkar þó ekki með öllu garni og gerir flíkina ekki fallegri – þetta ætti því frekar að vera síðasta úrræðið áður en flíkinni er hent og er alfarið á eigin ábyrgð :)

Að pressa nýprjónaða flík

Ef þú vilt ekki skola úr eða þvo nýprjónaða flík, má líka pressa hana. 

Leggðu flíkina á þurrt handklæði og sléttu vel úr henni. Leggðu rakt handklæði (t.d. gestahandklæði) yfir og pressaðu létt yfir með straujárni. Gættu þess að hafa járnið ekki of heitt og ekki of lengi í einu á flíkinni.

Sjá líka: Þvottaleiðbeiningar á garni – hvað táknin á garnmiðanum þýða.

← Allar greinar um prjónatækni

Til baka