Skilmálar og skilyrði

English version

Upplýsingar um seljanda

STROFF (Petit Knitting ehf., kt. 5910170470), Efstaleiti 25, 103 Reykjavík, sími 551 6070, stroff@stroff.is

Vörur

Stroff selur stafrænar prjónauppskriftir sem pdf-skjöl. Engar vörur eru sendar með pósti.

Afhending

Pöntun er afgreidd þegar greiðsla hefur verið staðfest. Uppskriftin er afhent rafrænt: hún er sótt á vefsíðunni eftir greiðslu og hlekkur er jafnframt sendur í tölvupósti. Mikilvægt er að slá netfang rétt inn við pöntun. Ef netfang er rangt eða tölvupóstur berst ekki er hægt að hafa samband við stroff@stroff.is og við sendum uppskriftina aftur.

Verð og virðisaukaskattur

Öll verð eru með virðisaukaskatti. Verð eru birt með fyrirvara um villur og áskilur Petit Knitting ehf. sér rétt til að fella niður pantanir og endurgreiða ef verð er rangt þegar pantað er. Afslættir gilda aldrei af gjafabréfum.

Réttur til að falla frá kaupum

Uppskriftir eru stafrænt efni sem er afhent strax eftir greiðslu. Með því að ganga frá kaupum óskar kaupandi eftir því að afhending hefjist strax og viðurkennir að þar með falli niður réttur hans til að falla frá kaupum þegar afhending hefur hafist. Þetta er staðfest í pöntunarstaðfestingu.

Gölluð skrá

Ef skrá opnast ekki, er skemmd eða er ekki sú uppskrift sem var keypt, sendum við nýja skrá eða leiðréttum það sem þarf. Ef það er ekki hægt endurgreiðum við kaupin. Hafið samband við stroff@stroff.is. Lögbundinn réttur kaupanda er óbreyttur.

Notkun

Uppskriftir eru seldar til einkanota. Óheimilt er að dreifa þeim, endurselja eða birta opinberlega.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila nema nauðsynlegt sé til að ljúka greiðslu eða afhendingu eða lög krefjast þess.

Lög og varnarþing

Um viðskiptin gilda íslensk lög, meðal annars lög um neytendasamninga nr. 16/2016 og lög um neytendakaup. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.