Kaupa uppskriftir
Það er einfalt að kaupa prjónauppskrift hjá Stroff. Allar uppskriftirnar okkar eru rafrænar (PDF-skjöl) og þú getur sótt þær um leið og greiðslan hefur gengið í gegn. Svona ferðu að:
1. Settu uppskrift í körfuna
Finndu uppskriftina sem þig langar í og smelltu á „Bæta í körfu“.

2. Haltu áfram eða bættu fleiri uppskriftum við
Gluggi birtist sem staðfestir að uppskriftinni hafi verið bætt í körfuna. Þar getur þú valið:
- „Ganga frá pöntun“ til að fara beint í greiðsluferlið,
- „Skoða körfu“ til að sjá allt sem er í körfunni, eða
- „Halda áfram að skoða“ ef þú vilt bæta fleiri uppskriftum við.

3. Farðu yfir körfuna
Í körfunni sérðu uppskriftirnar þínar og heildarverð. Þegar allt er klárt smellir þú á „Ganga frá pöntun“. Með því samþykkir þú skilmála okkar.

4. Netfang og heimilisfang
Sláðu inn netfangið þitt. Vandaðu innsláttinn vel, því uppskriftirnar eru sendar á þetta netfang. Ef þú vilt fá fréttir af nýjum uppskriftum og tilboðum hakar þú í „Vera á póstlista“.
Fylltu því næst út nafn og heimilisfang og smelltu á „Ganga frá greiðslu“.
Ertu með afsláttarkóða eða gjafabréf? Sláðu hann inn í reitinn „Gjafabréf eða afsláttakóði“ og smelltu á „Virkja“. Í síma finnur þú reitinn undir „Virkja afsláttarkóða“, neðst á síðunni.

5. Greiddu á öruggri greiðslusíðu Straums
Þú flyst á örugga greiðslusíðu Straums. Þar getur þú greitt með Google Pay, Apple Pay eða greiðslukorti (Visa, Mastercard og Maestro). Google Pay og Apple Pay birtast ef kort er vistað í símanum eða vafranum þínum.

Hvað gerist svo?
Um leið og greiðslan hefur gengið í gegn getur þú sótt uppskriftina. Hér eru leiðbeiningar um hvernig þú sækir uppskriftir eftir kaup.
Ef eitthvað er óljóst eða gengur ekki sem skyldi, sendu okkur endilega línu á stroff@stroff.is.