Hvernig má forðast göt undir höndum?
Allir sem hafa prjónað peysu ofan frá og niður, með laskaermum, þekkja vandamálið með götin!
Bolurinn er tilbúinn svo nú er bara að rumpa af ermum! Axlarlykkjurnar eru komnar á prjóninn, lykkjur neðst í handvegi hafa verið prjónaðar upp og allt að smella! Nei það eru göt sitthvoru megin við nýju lykkjurnar í handvegi!
Það er frekar erfitt að forðast þessi göt of oft á tíðum erfitt að loka þeim þannig að frágangurinn verði fallegur. Í skrefunum hér að neðan sýnum við einfalda aðferð við að loka þessum götum.
Flíkin á myndunum er barnapeysan okkar Mói.
Skref 1: Bolurinn er prjónaður, axlarlykkjurnar eru enn á lykkjuhaldaranum.

Skref 2: Axlarlykkjurnar eru komnar á prjóninn og lykkjurnar neðst í handvegi hafa verið prjónaðar upp.

Hér settum við fyrst axlarlykkjurnar af lykkjuhaldaranum aftur á hringprjóninn (auðvitað má líka nota sokkaprjóna). Þegar bolur og ermar voru aðskilin fitjuðum við upp fimm nýjar lykkjur. Úr þeim höfum við nú prjónað upp fimm nýjar lykkjur sem mynda ermina ásamt axlarlykkjunum.
Hér sjást greinilega götin sem myndast báðum megin á milli axlarlykkjanna og nýju lykknanna. Ef þú prjónar bara áfram núna verða stór göt á þessum stöðum síðar.
Skref 3: Aukalykkjur á skilunum

Til að forðast þessi göt tökum við einfaldlega upp eina aukalykkju hvoru megin úr „einskismannslandinu“ á milli gömlu og nýju lykkjanna. Ekki taka þær upp nákvæmlega í miðjunni (þá er hætta á tveimur litlum götum í stað eins stórs) heldur frekar við hliðina á nýju eða gömlu lykkjunum. Hér tókum við lykkjurnar tvær upp beint við hliðina á nýju lykkjunum, svo nú eru 7 nýjar lykkjur en ekki 5 eins og stendur í uppskriftinni.
Skref 4: Aukalykkjurnar eru prjónaðar saman við næstu lykkju

Aukalykkjurnar eru prjónaðar saman við lykkjurnar við hliðina strax í fyrstu umferð, svo að upphaflegi lykkjufjöldinn haldist. Og þá ekki við lykkjuna sem er nær (lykkjuna undir hendinni á beina prjóninum), heldur við lykkjuna sem er fjær, fyrstu lykkjuna á hringprjóninum. Á fyrri myndinni eru allar lykkjurnar enn á tveimur prjónum til að gera þetta skýrara. Þegar þú byrjar umferðina lítur þetta svona út:

Fyrir fyrstu umferðina setur þú lykkjurnar neðst í handvegi líka á prjóninn. Umferðin byrjar fyrir miðju, neðst í handvegi. 3 lykkjur í byrjun umferðar og 2 lykkjur í lok umferðarinnar (ef aukalykkjurnar tvær eru taldar með: 4 lykkjur í byrjun og 3 í lokin). Í þessu dæmi prjónar þú fyrstu 3 lykkjur umferðarinnar slétt eins og venjulega. Fjórða og fimmta lykkjan (þ.e. aukalykkjan og fyrsta axlarlykkjan) eru prjónaðar saman. Svo prjónar þú umferðina eins og venjulega þar til 4 lykkjur eru eftir. Prjónaðu næstu 2 lykkjur (síðustu axlarlykkjuna og aukalykkjuna) aftur saman og prjónaðu svo síðustu tvær lykkjurnar slétt.
Tilbúið – nú má halda áfram með ermina og engin göt sjást á skilunum.

Hér má aðeins fiffa til viðbótar. Ef gatið virðist sérstaklega stórt getur þú t.d. prófað að setja nýju aukalykkjuna snúna á prjóninn, það dregur gatið enn betur saman. Ég skil líka endann sem ég byrja ermina með eftir nógu langan til öryggis, svo ég geti stoppað í gat ef ekki tekst að bjarga því þrátt fyrir allar tilraunir. Það gerist helst í mjög lausum, loftmiklum flíkum þar sem prjónarnir eru grófari en mælt er með fyrir garnið. Þá dugar ekkert annað en að sauma götin saman með endanum.

Þessa aðferð getur þú einnig notað fyrir þumla og hæla sem prjónaðir með hjálparbandi. Á þumlum hefur það líka þann kost að þumalgatið verður ögn víðara í fyrstu umferðinni og þumallinn passar betur.