I-cord kantur
Í mörgum hnepptu peysunum okkar er hnappalistinn prjónaður um leið og peysan. Til að kanturinn verði snyrtilegur og stöðugur endum við hnappalistana báðum megin á i-cord kanti.
Við notum i-cord kantinn líka á axlabönd og eyrnaskjól á húfum – í raun alltaf þegar við þurfum sléttan hliðarkant þar sem ekki eru teknar upp fleiri lykkjur.
Svona er hann prjónaður:

Skref 1: Prjónaðu fyrstu 2 lykkjurnar í umferð á réttunni slétt. Prjónaðu svo umferðina áfram eftir mynstri þar til 2 lykkjur eru eftir.

Skref 2 - réttan: Taktu síðustu 2 lykkjurnar í umferðinni óprjónaðar af, eins og prjóna eigi brugðið, með bandið fyrir framan stykkið. Snúið við.

Skref 3 - rangan: Prjónaðu fyrstu 2 lykkjurnar í umferð á röngunni slétt. Prjónaðu svo eftir mynstri þar til 2 lykkjur eru eftir.

Skref 4: Taktu síðustu 2 lykkjurnar í umferðinni á röngunni óprjónaðar af, eins og prjóna eigi brugðið, með bandið fyrir framan stykkið.

Endurtaktu þessi 4 skref.
Í raun er aðferðin bara tvö skref: fyrstu 2 lykkjurnar eru alltaf prjónaðar slétt og síðustu 2 lykkjurnar alltaf teknar óprjónaðar af með bandið fyrir framan. Það sem skiptir máli er að fyrstu tvær lykkjurnar eru líka prjónaðar slétt á röngunni, en ekki slétt á réttunni og brugðið á röngunni. Það eru algeng mistök og þess vegna gerum við greinarmun á réttu og röngu hér.
Jafn mikilvægt er að bandið sé fyrir framan stykkið þegar 2 lykkjur eru eftir.
Þú getur notað i-cord kant með hvaða mynstri sem er. Í prufunni okkar prjónuðum við fyrstu sentimetrana garðaprjón (slétt á réttu og röngu) og síðan hefðbundið sléttprjón (slétt á réttunni, brugðið á röngunni). I-cord kantinum breyttum við ekki. Eins og þú sérð kemur hann í veg fyrir að kantarnir rúllist upp í sléttprjónaða hlutanum, svo hann hentar líka vel sem látlaus frágangur á sléttprjónuðum stykkjum.
Við notum i-cord kantinn líka sem frágang á stroffi. Þá prjónum við fyrstu 2 l slétt (i-cord lykkjurnar) og byrjum stroffið svo í þriðju lykkju á sléttri lykkju. Þannig verða skilin snyrtilegri en ef byrjað er á brugðinni lykkju.