Tvíbandaprjón - Hvernig prjóna skal saman ull og mohair?
Margar af flíkunum okkar eru prjónaðar með einum þræði af ull og einum þræði af mohair (oftast fínum silki-mohair þræði).
Þessi aukaþráður gerir flíkina mýkri og léttari. Fínu mohairhárin leggjast eins og mjúk slæða yfir lykkjurnar og silkið gefur fínlegan gljáa.
Hvaða áhrif hefur mohairþráður á flíkina?
Mohairþráðurinn er mjög fínn en hefur samt greinileg áhrif á prjónastærð og prjónfestu þegar hann er prjónaður með grófara garni. Þegar við bætum mohair við aðalgarnið förum við yfirleitt a.m.k. einni, stundum tveimur prjónastærðum ofar en við myndum nota fyrir aðalgarnið eitt og sér. Dúnmjúk mohairhárin fylla upp í prjónið svo flíkin verður lausari í sér og léttari en þó ekki götótt. Þannig fellur efnið mjög fallega.
Hvernig get ég bætt mohair við ef það er ekki í uppskriftinni – og get ég líka sleppt því?
Í grunninn má prjóna hvaða flík sem er, sem á að prjóna með einum þræði, með auka mohairþræði. Það breytir prjóninu, áferðinni og „tilfinningunni“ í flíkinni; mynstur verða mýkri og ekki eins skörp. Hér ræður því smekkurinn!
Ef þú vilt frekar prjóna flík sem á að prjóna með einum þræði með mohair, skiptir þú yfir í aðeins fínna aðalgarn:
Hér sérðu þrjár prufur, nákvæmlega sama mynstrið, þrjár mismunandi garnsamsetningar: Efst (drapplituð) gróf merínóull án mohair. Í miðjunni einn þráður af fínu, svolítið dúnkenndu garni (Ecopuno frá Lana Grossa) með mohair, og neðst einn þráður af fínni merínóull með mohair.
Efsta prufan, án mohair, er mjög stinn og þétt og mynstrið verður sérstaklega skýrt. Miðjuprufan er hins vegar mjög létt og fíngerð, því báðir þræðirnir eru loftmiklir og dúnkenndir. Þriðja prufan er nokkurn veginn þar á milli – hún er stinnari en prufan úr dúnkennda garninu, en þó mýkri og léttari en prufan úr hreinni merínóull.
Ef flíkin er prjónuð úr miðlungsgrófri merínóull, t.d. Katia Merino Sport, skiptir þú yfir í næsta grófleika fyrir neðan, hér Katia Merino 100%, bætir við einum þræði af mohair og prjónar flíkina á uppgefna prjónastærð. Á sama hátt getur þú prjónað flík, sem á að prjóna með tveimur þráðum, með einum þræði ef þú þolir ekki mohair. Þá sleppir þú mohair þræðinum og notar aðeins grófari ull eina og sér. Það sem skiptir máli er að þú náir uppgefinni prjónfestu.
Varðandi garnmagn er það metralengdin sem ræður: Ef þú þarft t.d. 750 m af grófari ull í peysu prjónaða með einum þræði þarftu sama magn í peysuna prjónaða með tveimur þráðum, þ.e. 750 m af fínni ullinni og 750 m af mohair.
Hvernig vel ég réttan lit á mohair?
Þegar fólk er að byrja sinn prjónaferil heldur það oft að mohairið þurfi að vera í sama lit og aðalgarnið – og vita svo ekki hvað skal gera þegar liturinn sem þeir vilja fæst ekki í báðum garntegundum. En þannig þarf það ekki að vera! Hér sýnum við þér fjölbreytnina við að para saman mismunandi liti af mohair og aðalgarni, og hvaða áhrif bæði líkir litir og litir með miklum andstæðum hafa.
Við prjónuðum nokkrar prufur, t.d. sama grunnlitinn með mismunandi mohairþráðum sem og mismunandi grunngarn og mohair með sama lit. Hér fyrir neðan sýnum við niðurstöðurnar:

Þessi prufa sýnir allt litrófið í einni sjónhendingu. Við prjónuðum alla prufuna með sömu hvítu merínóullinni sem grunnlit og pöruðum hana við mismunandi mohairþræði. Neðstu tvær rendurnar, með ljósbleiku og ljósdrapplituðu mohair, breyta litnum en mohairþráðurinn sker sig varla úr og prjónið virkar einsleitt og einlitt. Þessar mildu samsetningar henta sérstaklega vel fyrir gatamynstur, kaðalmynstur ofl.
Guli þráðurinn, og sérstaklega ryðrauði og svarti þráðurinn, skera sig greinilega frá hvíta grunnlitnum. Á litlum prufum virkar það mjög óreglulegt, en á stærri flötum jafnast áhrifin aðeins út. Fyrir gatamynstur og önnur mynstur myndum við ekki mæla með þessum samsetningum, því óregluleg áhrifin myndu gleypa mynstrið.

Hér sést vel hvaða áhrif mismunandi mohairsamsetningar hafa á sama gatamynstrið. Allar þrjár prufurnar voru prjónaðar með sama bleika mohairinu en þremur mismunandi merínólitum. Miðjuprufan, með ljósri merínóull, sýnir mynstrið skýrast og í neðstu prufunni kemur mynstrið líka nokkuð vel fram. Efst, fjólublá merínóull og gamalbleikt mohair, er prjónið svo órólegt að mynstrið sést varla – auk þess sást það svo illa á meðan prufan var prjónuð að villurnar urðu margar.
![]() |
![]() |
Haustlægð-peysa úr silfurgráu merínó-silkigarni (fyrir dásamlegan gljáann) prjónað með einum þræði af mohair í flöskugrænu með brúnum tónum.
![]() |
![]() |
Í þessari Ilmur-peysu pöruðum við fölgula ull við handlitað mohair í eldbleikum, appelsínugulum og rauðum tónum. Grunnlitirnir eru nógu líkir til að gleypa ekki stóra gatamynstrið, en gefa peysunni síbreytilegt yfirbragð.
![]() |
![]() |
Í Dyngja-peysunni prjónuðum við þrjá liti saman: Ljósgrátt Ecopuno og með því bleikt og ljósbrúnt mohair. Útkoman var furðu einsleit og ótrúlega falleg!
![]() |
![]() |
Skærbleikt, marglitt mohair og hvít merínóull sem dempar litinn og gefur honum festu: Bleik tyggjópeysa!
![]() |
![]() |
Haustlægð-peysa úr vínrauðri merínóull og svörtu mohair. Tilraun með sterka liti og miklar andstæður – en heillandi andstæður á stórum fleti!










