Nú getur þú greitt með Google Pay og Apple Pay
Við höfum tekið upp nýja greiðslugátt hjá Straumi og með henni bætast við tveir þægilegir greiðslumöguleikar: Google Pay og Apple Pay.
Það þýðir að þú þarft ekki lengur að slá inn kortanúmer, gildistíma og öryggiskóða þegar þú kaupir uppskrift. Ef kortið þitt er vistað í símanum eða vafranum dugar einn smellur, og fingrafar eða andlitsskönnun, til að ganga frá greiðslunni.
Svona virkar það
- Settu uppskriftirnar sem þig langar í í körfuna og smelltu á „Ganga frá pöntun“.
- Fylltu út netfang og heimilisfang og smelltu á „Ganga frá greiðslu“.
- Þú flyst á örugga greiðslusíðu Straums. Þar velur þú Google Pay eða Apple Pay, eða greiðir með korti eins og áður.
- Uppskriftin berst þér í tölvupósti um leið og greiðslan hefur gengið í gegn.

Google Pay birtist í Android-símum og í Chrome-vafranum, og Apple Pay í iPhone, iPad og Safari á Mac, svo framarlega sem kort er vistað í veskinu. Áfram er að sjálfsögðu hægt að greiða með Visa, Mastercard og Maestro.
Ef eitthvað er óljóst eða gengur ekki sem skyldi, sendu okkur endilega línu á stroff@stroff.is.