Umsagnir prjónara
Þessi uppskrift er á íslensku.
FREYR hringtrefill er prjónaður í hring og er mjög auðveldur í framkvæmd. Hann er bæði fyrir byrjendur í prjóni sem og lengra komna. FREYR er ein af nokkrum flíkum í F – línunni.
Efni: Merinoull frá Sandnes garn. Fæst m.a. í Fjarðarkaup og í Tinnu Nýbýlavegi.
Stærðir og magn:
0-2 ára: 50gr (1 dokka græn og 1 dokka hvít)
2-6 ára: 150gr (2-3 dokkur grænar og 1 dokka hvít)
6-10 ára 200gr (3-4 dokkur grænar og 1 dokka hvít)
ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.
Ummál:
0-2 ára: 36 sm
2-6 ára: 46 sm
6-10 ára: 56 sm
Lengd:
0-2 ára: 14 sm
2-6 ára: 21 sm
6-10 ára: 39 sm
Það sem þarf:
- hringprjónar nr. 4
- nál til frágangs
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Hentar ekki að greiða með korti? Sendu okkur póst á pk@petitknitting.is eða skilaboð á FB og við getum boðið þér að millifæra upphæðina. Uppskriftina færðu svo senda frá okkur.