Umsagnir prjónara
Þessi prjónauppskrift er á íslensku.
HERA húfa er prjónuð neðan frá og upp og í hring. Mynstrið í húfunni heitir á ensku honeymock comb og er mjög fallegt og mjög einfalt. Í uppskrift er linkur á vídjó sem sýnir aðferðina vel. Húfan er með góðu sniði og hylur vel lítil eyru. Garnið sem ég notaði er merino ull frá Sandnes og fæst m.a. í Tinnu og í Fjarðarkaup.
Með því að ýta á ADD TO CART getur þú keypt þessa fallegu uppskrift.
Stærðir og magn:
0-6 mánaða: 50gr (1 dokka)
6-12 mánaða: 50gr (1 dokka)
1-2 ára: 100gr (2. dokkur)
2-4 ára: 100gr (2 dokkur)
4-6 ára: 100gr (2 dokkur)
6-10 ára: 100gr (2 dokkur)
ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.
Það sem þarf:
- hringprjónar nr. 4
- sokkaprjónar nr. 4
- nál til frágangs
- prjónamerki
Prjónfesta:
26 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 4: 10 sm
Ummál:
0-6 mánaða: 32 sm
6-12 mánaða: 37 sm
1-2 ára: 41 sm
2-4 ára: 46 sm
4-6 ára: 50 sm
6-10 ára: 55 sm
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Hentar ekki að greiða með korti? Sendu okkur póst á pk@petitknitting.is eða skilaboð á FB og við getum boðið þér að millifæra upphæðina. Uppskriftina færðu svo senda frá okkur.