Umsagnir prjónara
Þessi uppskrift er á íslensku, og afhendist rafrænt samstundis eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Leiðbeiningar um hvernig skal nálgast uppskriftina er að finna hér.
Mugison buxur eru prjónaðar ofan frá og niður og í hring.
Efni
-
Katia Merino 100%
- netverslun stroff.is
Stærðir og magn af garni
- 0-3 mánaða: 100gr
- 3-6 mánaða: 150gr
- 6-12 mánaða: 200gr
- 1-2 ára: 200 gr
- 2-4 ára: 250 gr
- 4-6 ára: 250 gr
ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.
Það sem þarf
- 2-5 dokkur af garni
- sokkaprjónar nr. 4
- hringprjónn nr. 4 (40 sm)
- nál til frágangs
- prjónamerki
Ummál
- 0-3 mánaða: 40 sm
- 3-6 mánaða: 45 sm
- 6-12 mánaða: 48 sm
- 1-2 ára: 52 sm
- 2-4 ára: 56 sm
- 4-6 ára: 60 sm
Prjónfestan í þessum buxum er sú að 23 lykkjur á prjóna nr. 4 gera 10 sm með því að nota Merino 100% frá Katia.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.