Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring, með gatamynstri í berustykki. Mynsturmyndir eru aftast í uppskrift.
Efni
Katia Merino 100%.
Einnig hægt að nota Feeling frá Lana Gatto og Merinocot frá Lana Gatto.
Passa að skoða metrafjölda á dokku miðað við það garn sem mælt er með
Ef Merino 100% eða Feeling verða fyrir valinu mælum við með að nota prjóna nr. 4. Ef Merinocot verður fyrir valinu mælum við með að nota prjóna nr. 3,5.
Ávallt er best að gera prjónfestuprufu.
Stærð | Magn mv. Merino 100% |
1-2 ára | 200 g |
2-4 ára | 250 g |
4-6 ára | 300 g |
6-8 ára | 350 g |
8-10 ára | 400 g |
10-12 ára | 450 g |
12-14 ára | 500 g |
Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 4 (40 og 60/80 cm langir)
- Hringprjónn nr. 3,5 (60 cm)
- Sokkaprjónar nr. 4 (ermar)
- Sokkaprjónar nr. 3,5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Mál
Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
1-2 ára: 22 cm
2-4 ára: 25 cm
4-6 ára: 28 cm
6-8 ára: 30 cm
8-10 ára: 32 cm
10-12 ára: 34 cm
12-14 ára: 36 cm
Ummál á bol
1-2 ára: 66 cm
2-4 ára: 71 cm
4-6 ára: 74 cm
6-8 ára: 78 cm
8-10 ára: 83 cm
10-12 ára: 87 cm
12-14 ára: 90 cm
Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
1-2 ára: 19 cm
2-4 ára: 24 cm
4-6 ára: 26 cm
6-8 ára: 29 cm
8-10 ára: 34 cm
10-12 ára: 38 cm
12-14 ára: 42 cm
Ummál á ermum
1-2 ára: 21 cm
2-4 ára: 24 cm
4-6 ára: 26 cm
6-8 ára: 27 cm
8-10 ára: 28,5 cm
10-12 ára: 32 cm
12-14 ára: 34 cm
Prjónfesta
Katia Merino 100% og Feeling frá Lana
Gatto: 23 lykkjur á prjóna nr. 4 í sléttu prjóni gera 10 cm.
Merinocot frá Lana Gatto: 23 lykkjur
á prjóna nr. 3,5 í sléttu prjóni gera 10 cm
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.