Umsagnir prjónara
Skorra hálsaskjól er einfalt og skemmtilegt að prjóna. Skýlir hálsum, og fer vel með öllu.
Skorri er prjónaður ofan frá og niður og í hring. Hálsmálið sjálft er broken rib en berustykkið er perluprjón.
Efni
Merino 100% frá Katia.
Einnig er hægt að nota Feeling frá Lana Gatto á sömu prjónastærð, eða Merinocot á prjóna nr 3,5.
Mohair útgáfa - fyrir þá sem vilja nota mohair í Skorra er t.d. hægt að nota Katia Merino Baby eða VIP frá Lana Gatto + mohair, einn þráð af hvoru.
Garnmagn
6-12 mán: 50 g
1-3 ára: 50 g
4-8 ára: 100 g
9-12 ára: 150 g
ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.
Það sem þarf.
- Hringprjónn nr. 4, 40 cm
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Prjónfestan í þessari uppskrift er sú að 24 lykkjur á prjóna nr. 4 gera 10 cm með því að nota einn þráð af Merino 100% frá Katia.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.