Umsagnir prjónara
Una eyrnaband er gefið út í samstarfi stroff.is og Sölku Sólar, en Sjöfn og Salka unnu hugmyndavinnuna og uppskriftina í sameiningu. Eyrnabandið er bara ein af mörgum uppskriftum í Unu línunni okkar.
Bandið er prjónað fram og til baka.
Efni
Katia Prime Merino
- www.stroff.is/garn
Einnig er hægt að nota Katia Merino 100%, en huga þarf að prjónfestu.
Stærðir og magn af garni
Stærð | Magn | Ummál |
6-12 mánaða | 50 gr | 37 sm |
1-2 ára | 50 gr | 38 sm |
2-4 ára | 50 gr | 40 sm |
4-8 ára | 50 gr | 42 sm |
S/M | 100 gr | 46 sm |
M/L | 100 gr | 48 sm |
Það sem þarf
- sokkaprjóna eða hringprjóna nr. 5 - 5.5
- nál til frágangs
- dúskur til skrauts frá stroff.is
Prjónfestan í þessu eyrnabandi er sú að 18 lykkjur á prjóna nr. 5 gera 10 sm með því að nota Prime Merino frá Katia.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.