Umsagnir prjónara
BJÖRK HNEPPT PEYSA
Þessi uppskrift er á íslensku og er eldri uppskrift af Björk. Nýju útgáfuna færðu HÉR.
Með því að ýta á ADD TO CART getur þú keypt þessa fallegu uppskrift.
BJÖRK er prjónuð neðan frá og upp og fram og til baka. Þegar peysan er skoluð/þvegin stækkar hún aðeins – bæði lengist og breikkar (um ½ -1 sm í hvora átt). Þess vegna virðist peysan jafnvel heldur lítil eftir að hún er komin af prjónunum.
Efni:
Smart eða Mandarin Naturel frá Sandnes garn en hægt er að nota allt garn sem passar fyrir prjóna 4-5.
Stærðir og magn:
0-6 mánaða: 150gr (þrjár dokkur)
6-12 mánaða: 200gr (fjórar dokkur)
12-18 mánaða: 250gr (fimm dokkur)
18-24 mánaða: 300gr (sex dokkur)
Það sem þarf:
- hringprjónar nr.5 (40cm, 60cm, 60cm, 60/80cm)
- Sokkaprjónar nr.4 og nr.5
- 5, 6, 6, 7 stk. af trétölum
- nál til frágangs og til að sauma tölurnar í
- prjónamerki
- hjálparprjónn fyrir kaðalprjón
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Hentar ekki að greiða með korti? Sendu okkur póst á pk@petitknitting.is eða skilaboð á FB og við getum boðið þér að millifæra upphæðina. Uppskriftina færðu svo senda frá okkur.