Peysan er prjónuð ofan frá og niður, fram og til baka (slétt á réttu og brugðin á röngu). Boðungurinn eða kanturinn er prjónaður eftir á. Hálsmálið er V laga.
Efni
Love Wool frá Katia.
Stærð | Litur A (119) | Litur B (100) | Litur C (120) |
S | 300 g | 400 g | 300 g |
M | 300 g | 400 g | 300 g |
L | 300 g | 500 g | 400 g |
XL | 400 g | 700 g | 400 g |
Það sem þarf
- Prjónar nr. 12 (40 og 120 cm)
- Prjónar nr. 15 (40 og 120 cm)
- Sokkaprjónar nr. 12 og 15 ef 40 cm langur prjónn gengur ekki upp
- Prjónamerki
- Nál til frágangs
- Tölur
Mál
Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
S: 28 cm
M: 30 cm
L: 32 cm
XL: 34 cm
Ummál á bol
S: 116 cm
M: 122 cm
L: 133 cm
XL: 142 cm
Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
S: 38 cm
M: 40 cm
L: 42 cm
XL: 44 cm
Ummál á ermum
S: 45 cm
M: 48 cm
L: 55 cm
XL: 57 cm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 7 lykkjur á prjóna nr. 15 gera 10 cm með því að nota Love Wool frá Katia.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.