Vettlingarnir eru prjónaðir í hring með poppmynstri á handabökum.
Vettlingarnir eru prjónaðir úr einum þræði af Katia Merino Sport og einum þræði af Angel by Permin mohair svo þeir eru einstaklega mjúkir, sterkir og hlýir.
Efni
Katia Merino Sport & Angel by Permin
- www.stroff.is/sport
- www.stroff.is/mohair
Angel by Permin er einstaklega hentugt því við seljum það í 25 gramma dokkum, engin þörf fyrir að kaupa 50 gramma dokku þegar það þarf minna en 25 grömm í þessa vettlinga.
Stærðir og magn af garni | ||
Sport | Angel Mohair | |
S/M | 100 gr | 25 gr |
M/L | 100 gr | 25 gr |
Það sem þarf
- sokkaprjónar nr. 6
- nál til frágangs
- spotti af garni í öðrum lit til að setja þumallykkjur á
Þvermál
S/M: 9,5 sm
M/L: 9,5 sm
Lengd
S/M: 22,5 sm
M/L: 25 sm
Prjónfestan í þessum vettlingum er sú að 15 lykkjur á prjóna nr. 6 gera 10 sm með einum þræði af Merino Sport og einum þræði af Angel saman
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.