Popp í Reykjavík er prjónuð ofan frá og niður og í hring. Útaukningin er laskaútaukning. Poppmynstur er prjónað efst í berustykkið.
Hvernig ætlar þú að hafa þína Popp í Reykjavík? Einlita, tvílita eða poppið í alls konar litum? Það gæti verið mjög skemmtilegt að nota t.d. afgangagarn í poppið.
Efni
Þitt er valið, við mælum með einhverju af þessu þrennu.
Katia Merino Sport,
- www.stroff.is/sport
Katia Merino Aran eða Aran Natur
- www.stroff.is/katia
Special Aran with Wool
- www.stroff.is/specialaran
Stærðir | Magn af garni |
6-12 mán | 200 gr |
1-2 ára | 250 gr |
2-4 ára | 250 gr |
4-6 ára | 3-350 gr |
6-8 ára | 350 gr |
8-10 ára | 4-450 gr |
10-12 ára | 450 gr |
Það sem þarf
- hringprjónar nr. 5,5 - 6 (40 og 60/80 sm langan)
- sokkaprjónar nr. 5,5 - 6
- nál til frágangs
- prjónamerki
Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
6-12 mán: 21 sm
1-2 ára: 24 sm
2-4 ára: 27 sm
4-6 ára: 33 sm
6-8 ára: 37 sm
8-10 ára: 41 sm
10-12 ára: 44 sm
Ummál á bol
6-12 mán: 60 sm
1-2 ára: 65 sm
2-4 ára: 70 sm
4-6 ára: 75 sm
6-8 ára: 80 sm
8-10 ára: 85 sm
10-12 ára: 90 sm
Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
6-12 mán: 17 sm
1-2 ára: 19 sm
2-4 ára: 21 sm
4-6 ára: 27 sm
6-8 ára: 34 sm
8-10 ára: 37 sm
10-12 ára: 40 sm
Ummál á ermum
6-12 mán: 18 sm
1-2 ára: 20 sm
2-4 ára: 22 sm
4-6 ára: 24 sm
6-8 ára: 25 sm
8-10 ára: 26 sm
10-12 ára: 27 sm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 16 lykkjur á prjóna nr. 5,5 - 6 gera 10 sm með því að nota Merino Sport frá Katia.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.