Umsagnir prjónara
Þessi uppskrift er bara buxurnar. Þú getur líka keypt Kósýgalla settið (peysa & buxur) saman á hagstæðara verði en að kaupa uppskriftirnar stakar.
Smelltu hér til að finna settið.
Buxurnar eru prjónaðar með sléttu prjóni, ofan frá og niður og í hring. Sniðið á buxunum er þröngt og þær eru hugsaðar sem leggings buxur. Hægt er að fara upp um stærð ef þið viljið hafa þær víðari. #kósýgalli
Efni
Merino Baby frá Katia.
Einnig hægt að nota
- Mini Soft eða VIP frá Lana Gatto.
Stærðir og magn af garni
Stærð | Magn |
Nýburi | 50 g |
3-6 mán | 100 g |
6-12 mán | 100 g |
1-2 ára | 100 g |
2-4 ára | 100 g |
4-6 ára | 150 g |
6-8 ára | 200 g |
Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 3.5 (40 cm langur)
- Sokkaprjónar nr. 3.5 (fyrir skálmar og stroff á skálm- um)
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Lengd á skálmum frá klofi
Nýburi: 16 cm
3-6 mán: 20 cm
6-12 mán: 26 cm
1-2 ára: 31 cm
2-4 ára: 38 cm
4-6 ára: 43 cm
6-8 ára: 49 cm
Lengd á buxum, frá streng og niður
Nýburi: 30 cm
3-6 mán: 36 cm
6-12 mán: 44 cm
1-2 ára: 51 cm
2-4 ára: 62 cm
4-6 ára: 70 cm
6-8 ára: 79 cm
Ummál um mitti
Nýburi: 40 cm
3-6 mán: 43 cm
6-12 mán: 45 cm
1-2 ára: 47 cm
2-4 ára: 50 cm
4-6 ára: 55 cm
6-8 ára: 60 cm
Prjónfestan í þessum buxum er sú að 26 lykkjur á prjóna nr. 3,5 gera 10 cm með því að nota Baby frá Katia.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.