Umsagnir prjónara
Sokkar, vettlingar og húfa fyrir blessuð börnin. Þessar flíkur er gaman að prjóna og henta vel ungbörnum sem stærri krökkum. #retrókombó
Efni
Feeling frá Lana Gatto.
Einnig hægt að nota
Merino 100% frá Katia.
Stærðir og magn af garni
Stærð | Allt settið | Húfa | Vettlingar | Hosur |
Nýburi | 100 g | 50 g | 50 g | 50 g |
3-6 mán | 100 g | 50 g | 50 g | 50 g |
6-12 mán | 100 g | 50 g | 50 g | 50 g |
1-2 ára | 150 g | 100 g | 50 g | 50 g |
2-4 ára | 200 g | 100 g | 50 g | 50 g |
4-6 ára | - | 100 g | 50 g | 50 g |
Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 3,5 (40 cm langur)
- Sokkaprjónar nr. 2.5, 3 og 3.5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Mál
Stærð | Húfa ummál | Vettlingar ummál | Hosur ummál |
Nýburi | 31 cm | 10 cm | 10 cm |
3-6 mán | 33 cm | 11 cm | 11 cm |
6-12 mán | 34 cm | 13 cm | 13 cm |
1-2 ára | 35 cm | 14 cm | 14 cm |
2-4 ára | 37 cm | 16 cm | 16 cm |
4-6 ára | - | 17 cm | 17 cm |
Prjónfestan í þessum bol er sú að 26 lykkjur á prjóna nr. 3,5 gera 10 cm með því að nota Feeling frá Lana Gatto.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.