Ey-Gló peysa er prjónuð úr tveimur þráðum (saman), ofan frá og niður, fram og til baka, með laskaútaukningu og gatamynstri í ermum.
Erfiðleikastig
2 - snúin
Efni
1 þráður af Bamboo Wool og 2 þræðir af Mohiar Silk. Þræðirnir eru prjónaðir saman. Garnið fæst í Icewear Garn.
Einnig hægt að nota:
1 þráð af Katia Merino Sport og 1 þráð af Mohair Silk saman. Garnið fæst í Föndra.
1 þráð af Super og 1 þráð af Mohair Mix saman. Garnið fæst í Icewear Garn.
Garnmagn
Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 7 (40, 100/120 cm)
- Nál til frágangs
- 9 hringlaga prjónamerki sem passa á prjóna nr. 7
Ummál á bol
XS: 100 cm
S: 105.5 cm
M: 111.5 cm
L: 117 cm
XL: 123 cm
2XL: 128.5 cm
Prjónfesta
14 lykkjur og 20 umferðir = 10 x 10 cm.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.