Umsagnir prjónara
Uppskriftin Una bleiubuxur er gefin út í samstarfi stroff.is og Sölku Sólar, en Sjöfn og Salka unnu hugmyndavinnuna og uppskriftina í sameiningu. Buxurnar eru bara ein af mörgum uppskriftum í Unu línunni okkar.
Buxurnar er prjónuð ofan frá og niður og í hring.
Efni
Katia Merino Baby
- www.stroff.is/garn
Stærðir og magn af garni
Stærðir | Magn | Ummál |
NB | 50 gr | 37 sm |
3-6 mán | 100 gr | 40 sm |
6-12 mán | 100 gr | 42 sm |
12-18 mán | 100 gr | 44 sm |
18-24 mán | 100 gr | 46 sm |
Það sem þarf
- hringprjónn nr. 3,5 (40 sm)
- sokkaprjónar nr. 3,5
- nál til frágangs
- prjónamerki
Prjónfestan í þessum buxum er sú að 26 lykkjur á prjóna nr. 3,5 gera 10 sm með því að nota Merino Baby frá Katia.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.