Umsagnir prjónara
Una hneppt peysa er gefin út í samstarfi stroff.is og Sölku Sólar, en Sjöfn og Salka unnu hugmyndavinnuna og uppskriftina í sameiningu. Peysan er bara ein af mörgum uppskriftum í Unu línunni okkar.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður og fram og tilbaka.
Ermar eru prjónaðar í hring og með sléttu prjóni.
Efni
Katia Merino Baby
- www.stroff.is/garn
Stærðir og magn af garni
Stærð | Magn |
NB |
100 gr |
3-6 mán |
150 gr |
6-12 mán |
150 gr |
12-18 mán |
200 gr |
18-24 mán |
200 gr |
Það sem þarf
- hringprjónn nr. 3,5 (60 eða 80 sm langir)
- sokkaprjónar nr. 3,5
- sokkaprjónar nr. 3 (fyrir stroff á ermum)
- nál til frágangs
- prjónamerki
- heklunál nr. 3-3,5
Lengd á bol, frá handvegi
NB: 16 sm
3-6 mán: 18 sm
6-12 mán: 19 sm
12-18 mán: 21 sm
18-24 mán: 23 sm
Ummál á bol
NB: 47 sm
3-6 mán: 52 sm
6-12 mán: 57 sm
12-18 mán: 62 sm
18-24 mán: 65 sm
Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
NB: 16 sm
3-6 mán: 17 sm
6-12 mán: 18 sm
12-18 mán: 21 sm
18-24 mán: 24 sm
Ummál á ermum
NB: 16 sm
3-6 mán: 17,5 sm
6-12 mán: 19 sm
12-18 mán: 20 sm
18-24 mán: 21 sm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 26 lykkjur á prjóna nr. 3,5 gera 10 sm með því að nota Merino Baby frá Katia.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.