Umsagnir prjónara
Húfan er prjónuð neðan frá og upp og í hring.
Þessi uppskrift er einföld.
Á myndunum sést einnig peysa í stíl við húfuna. Uppskriftirnar er hægt að kaupa saman í setti á betri verði með því að smella hér.
#70'sett
Efni
Katia Merino Sport eða Maxi Soft frá Lana Gatto.
Einnig hægt að nota Katia Merino Aran, Nuovo Irlanda frá Lana Gatto eða Katia Merino Tweed.
Stærðir | Aðallitur | Aukalitir |
6-12 mán | 100 g | 1 dokka af hverjum lit |
1-2 ára | 100 g | 1 dokka af hverjum lit |
2-4 ára | 100 g | 1 dokka af hverjum lit |
4-8 ára | 100 g | 1 dokka af hverjum lit |
9+ ára | 100 g | 1 dokka af hverjum lit |
Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 4.5 (40 cm langur)
- Sokkaprjónar nr. 4.5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Ummál húfu
6-12 mán: 36 cm
1-2 ára: 38 cm
2-4 ára: 40 cm
4-8 ára: 42 cm
9 ára+: 44 cm
Prjónfestan í þessari húfu er sú að 22 lykkjur á
prjóna nr. 4,5 gera 10 cm með því að nota Merino Sport frá Katia.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.