Umsagnir prjónara
Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring, með sléttu prjóni og laskaútaukningu.
Peysan er prjónuð með tvíbandaprjóni
- einn þráður af Prime Merino frá Katia
- einn þráður af mohairi, annað hvort Angel frá Permin eða Silk Mohair frá Lana Gatto.
Stærðir og magn af garni
Prime | Mohair | |
XS | 300 g | 75 g |
S | 350 g | 100 g |
M | 400 g | 100 g |
L | 450 g | 125 g |
XL | 450 g | 125 g |
Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 6, 40 sm (fyrir hálsmál)
- Hringprjónar nr. 7 (40, 80 og 100/120 sm langir)
- Hringprjónar nr. 5.5 (fyrir stroff á bol)
- Sokkaprjónar nr. 5.5 (fyrir stroff á ermum)
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
XS: 31 sm
S: 33 sm
M: 36 sm
L: 38 sm
XL: 40 sm
Ummál á bol
XS: 105 sm
S: 111 sm
M: 116 sm
L: 123 sm
XL: 131 sm
Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
XS: 34 sm
S: 36 sm
M: 38 sm
L: 40 sm
XL: 42 sm
Ummál á ermum
XS: 34 sm
S: 37 sm
M: 40 sm
L: 42 sm
XL: 44 sm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 14 lykkjur á prjóna nr. 7 gera 10 sm með því að nota einn þráð af Prime og einn þráð af mohair.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.