Stundum þarf ekki að flækja hlutina með skrauti og krúsidúllum. Þytur er stílhrein peysa, prjónuð með mohair-garni sem gerir hana einstaklega mjúka og notalega. Hún var hönnuð með það í huga að vera eilítið í yfirstærð og þar af leiðandi stækkar barnið ekki á örfáum klukkutímum upp úr peysunni.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring, með sléttu prjóni og laskaútaukningu. #þyturpeysa
Efni
- Merino 100% frá Katia eða Feeling frá Lana Gatto og
- Angel by Permin eða Silk Mohair frá Lana Gatto eða 50 Mohair Shades frá Katia.
Stærð | Merino 100% | Mohair |
1-2 ára | 250 g | 75 g |
2-4 ára | 300 g | 75 g |
4-6 ára | 350 g | 100 g |
6-8 ára | 350 g | 100 g |
8-12 ára | 450 g | 125 g |
Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 4.5 - 40 cm í hálsmál
- Hringprjónar nr. 4.5 - 40, 60 og 80 cm í bol
- Hringprjónn nr 4.0 - 60 cm í stroff á bol
- Sokkaprjónar nr. 4.5 í ermar
- Sokkaprjónar nr. 4.0 í stroff á ermum
Mál
Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
1-2 ára: 20 cm
2-4 ára: 24 cm
4-6 ára: 28 cm
6-8 ára: 32 cm
8-12 ára: 36 cm
Ummál á bol
1-2 ára: 70 cm
2-4 ára: 75 cm
4-6 ára: 80 cm
6-8 ára: 85 cm
8-12 ára: 90 cm
Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
1-2 ára: 18 cm
2-4 ára: 22 cm
4-6 ára: 26 cm
6-8 ára: 30 cm
8-12 ára: 34 cm
Ummál á ermum
1-2 ára: 22 cm
2-4 ára: 24 cm
4-6 ára: 26 cm
6-8 ára: 29 cm
8-12 ára: 31 cm
Prjónfestan í þessari peysu er sú að 20 lykkjur á prjóna nr. 4,5 gera 10 cm með því að nota einn þráð af Merino 100% og einn þráð af mohair.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.