FOLDA HÚFA
FOLDA HÚFA
FOLDA HÚFA
  • Load image into Gallery viewer, FOLDA HÚFA
  • Load image into Gallery viewer, FOLDA HÚFA
  • Load image into Gallery viewer, FOLDA HÚFA

FOLDA HÚFA

Petit Knitting
Listaverð
850 kr
Tilboð
850 kr
Listaverð
Uppselt
Unit price
per 

Þessi prjónauppskrift er á íslensku.

FOLDA húfa er prjónuð neðan frá og upp og í hring. Húfan er auðveld í framkvæmd en mjög skemmtilegt verkefni, bæði fyrir byrjendur sem og fyrir lengra komna. FOLDA er ein af nokkrum flíkum í F – línunni.

Efni: Smart frá Sandnes garn. Fæst m.a. í Fjarðarkaup, Rúmfó og Hagkaup.

Stærðir og magn:

0-6 mánaða: 50gr (1 dokka grá og 1 dokka hvít)
6-12 mánaða: 50gr (1 dokka grá og 1 dokka hvít)
1-2 ára: 100gr (2. Dokkur gráar og 1 dokka hvít)
2-4 ára: 100gr (2 dokkur gráar og 1 dokka hvít)
4-6 ára: 100gr (2 dokkur gráar og 1 dokka hvít)
6-10 ára: 100gr (2 dokkur gráar og 1 dokka hvít)


ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.

Ummál:

0-6 mánaða: 33.5 sm
6-12 mánaða: 36.5 sm
1-2 ára: 43.5 sm
2-4 ára: 46.5 sm
4-6 ára: 52.5 sm
6-10 ára: 56.5 sm

Það sem þarf:
- hringprjónar nr. 4
- sokkaprjónar nr. 4
- nál til frágangs
- prjónamerki

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Hentar ekki að greiða með korti? Sendu okkur póst á pk@petitknitting.is eða skilaboð á FB og við getum boðið þér að millifæra upphæðina. Uppskriftina færðu svo senda frá okkur.