Skip to product information
1 of 9

STROFF

Frostrós fullorðinspeysa

Frostrós fullorðinspeysa

Listaverð 1.200 kr
Listaverð Sale price 1.200 kr
Tilboð Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn

Jólapeysa Stroff árið 2021 heitir Frostrós.

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring með mynsturbekk í berustykki. Ermar eru prjónaðar með sléttu prjóni og ermakaflinn gefur val um tvær aðferðir.

Þessi uppskrift er snúin.
Gæti rifið í hjá þeim reynsluminnstu, en þeir sem vanari eru rúlla henni upp án þess að blikna.

Efni
Nuovo Irlanda eða Maxi Soft frá Lana Gatto.

Stærð Aðallitur stutt/síð Aukalitur
2XS 500/550 g 50 g
XS 550/600 g 50 g
S 600/650 g 50 g
M 700/750 g 50 g
L 800/850 g 100 g
XL 850/900 g 100 g
2XL 900/950 g 100 g


Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 6 (40 og 80/100/120 cm).
- Hringprjónn nr. 5.5 (40 og 80 cm fyrir hálsmál, stroff á bol og stroff á ermum).
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Lengd bolur, frá handvegi
2XS: 31 cm
XS: 32 cm
S: 33 cm
M: 34 cm
L: 36 cm
XL: 38 cm
2XL: 40 cm

Ummál bolur
2XS: 95 cm
XS: 100 cm
S: 105 cm
M: 110 cm
L: 115 cm
XL: 122 cm
2XL: 127 cm

Lengd ermi, frá handvegi
2XS: 41 cm
XS: 42 cm
S: 43 cm
M: 44 cm
L: 46 cm
XL: 48 cm
2XL: 50 cm

Ummál ermi
2XS: 36 cm
XS: 38 cm
S: 39 cm
M: 40 cm
L: 42 cm
XL: 44 cm
2XL: 46 cm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 16 lykkjur á prjóna nr. 6 gera 10 cm með því að nota Nuovo Irlanda frá Lana Gatto.

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu. 

 

Sjá allar upplýsingar