Skip to product information
1 of 13

STROFF

Halló heimur krakkapeysa

Halló heimur krakkapeysa

Listaverð 1.200 kr
Listaverð Sale price 1.200 kr
Tilboð Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn

Halló heimur fyrir krakka

Þessi uppskrift er á íslensku og er nú loksins komin í stærri stærðum!

Með því að ýta á ADD TO CART getur þú keypt þessa fallegu uppskrift. 

Peysan er prjónuð ofan frá og niður og fram og til baka með mynstri í bakstykki.

Efni:
Peysan er prjónuð með einum þræði af Bamboo Wool og einum þræði af Mohair frá Icewear EÐA Heavy Merino frá KFO.

Einnig hægt að nota:
- Katia Merino Sport (Föndra)
- Special Aran With Wool (Amma Mús)
- Puno frá Rauma (Amma mús)
- Mitu frá Rauma með 1 þræði af Mohair (Amma mús)
- Katia Merino 100% með 1 þræði af Mohair (Föndra)

Stærðir og magn af garni:

Stærð Bamboo wool Silk Mohair
 6-12 mán 200 g (400m) 50 g
1-2 ára 200 g (400m) 50 g
2-4 ára 250/300 g (500-600m) 75 g
4-6 ára 300 g (600m) 75 g
6-8 ára 350 g (700m) 100 g
8-12 ára 400 g (800m) 100 g

 

Stærð Heavy Merino frá KFO
6-12 mán 200 g
1-2 ára 200 g
2-4 ára 200-250 g 
4-6 ára 250 g
6-8 ára 300 g
8-12 ára 350 g


Það sem þarf:
- Hringprjónn nr. 5 og 5.5 (60 eða 80 cm langur)
- Sokkaprjónar nr. 5 og 5.5
- Nál til frágangs
- 8 hringlaga prjónamerki
- Tölur (15-20 mm)

 Stærð Ummál bolur Lengd bolur, frá handvegi
6-12 mán 59 cm 18 cm
1-2 ára 63.5 cm 20 cm
2-4 ára 69.5 cm 22 cm
4-6 ára 74 cm 26 cm
6-8 ára 78.5 cm 30 cm
8-12 ára 83 cm 35 cm

 

 Prjónfestan í þessari uppskrift er sú að 18 lykkjur á prjóna nr. 5.5 gera 10 cm.

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu. 

Sjá allar upplýsingar