Ilmur peysa
Ilmur peysa
Ilmur peysa
Ilmur peysa
Ilmur peysa
Ilmur peysa
Ilmur peysa
Ilmur peysa
  • Load image into Gallery viewer, Ilmur peysa
  • Load image into Gallery viewer, Ilmur peysa
  • Load image into Gallery viewer, Ilmur peysa
  • Load image into Gallery viewer, Ilmur peysa
  • Load image into Gallery viewer, Ilmur peysa
  • Load image into Gallery viewer, Ilmur peysa
  • Load image into Gallery viewer, Ilmur peysa
  • Load image into Gallery viewer, Ilmur peysa

Ilmur peysa

STROFF
Listaverð
1.200 kr
Tilboð
1.200 kr
Listaverð
Uppselt
Unit price
per 

Peysan er hönnuð með það í hugsa að maður geti lufsast heima í kósíbuxum eða farið í töff gallabuxur eða kjól, skellt á sig smá varalit og látið peysuna verja sig fyrir íslenskum kulda. Mohair-þráðurinn gefur peysunni fyllingu og gerir hana hlýja og mjúka.

Þessi peysa er prjónuð ofan frá og niður, fram og tilbaka með sléttu prjóni á réttunni og brugðnu prjóni á röngunni. Peysan er með gatamynstri og útaukningu í berustykki.
 #ilmurpeysa 

Efni
Einn þráður af Prime Merino frá Katia eða Feeling frá Lana Gatto eða Super Soft frá Lana Gatto og einn þráður af mohair, annað hvort Angel by Permin eða Silk Mohair frá Lana Gatto. 

Stærðir og magn af garni

Stærð Prime Mohair
XS 400 gr 100 gr
S 400 gr 125 gr
M 500 gr 125 gr
L 600 gr 150 gr
XL 700 gr 150 gr
XXL 800 gr 175 gr


Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 5,5 (40 og 100/120/150 cm langir, fer eftir stærð á peysu og vali hvers og eins)
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
- Tölur, ég notaði 6 stykki
- Hjálparnælur, hægt að nota bandspotta

Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
XS: 35 cm
S: 36 cm
M: 38 cm
L: 40 cm
XL: 43 cm
XXL: 46 cm

Ummál á bol
XS: 108 cm
S: 115 cm
M: 120 cm
L: 125 cm
XL: 130 cm
XXL: 135 cm

Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
XS: 30 cm
S: 31 cm
M: 33 cm
L: 35 cm
XL: 37 cm
XXL: 39 cm

Ummál á ermum
XS: 30 cm
S: 32 cm
M: 33 cm
L: 35 cm
XL: 36 cm
XXL: 38 cm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 20 lykkjur á prjóna nr. 5,5 gera 10 cm með því að nota einn þráð af Prime Merino og einn þráð af mohair.

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu. 

Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.