Karitas dömupeysa
Karitas dömupeysa
Karitas dömupeysa
Karitas dömupeysa
Karitas dömupeysa
Karitas dömupeysa
  • Load image into Gallery viewer, Karitas dömupeysa
  • Load image into Gallery viewer, Karitas dömupeysa
  • Load image into Gallery viewer, Karitas dömupeysa
  • Load image into Gallery viewer, Karitas dömupeysa
  • Load image into Gallery viewer, Karitas dömupeysa
  • Load image into Gallery viewer, Karitas dömupeysa

Karitas dömupeysa

STROFF
Listaverð
600 kr
Tilboð
600 kr
Listaverð
1.200 kr
Uppselt
Unit price
per 

Peysan er prjónuð ofan frá og niður og í hring, með gatamynstri í berustykki. Uppskriftin gefur tvær mismunandi leiðir til að klára bolinn. Annars vegar að hafa peysuna í mittissídd og þrengja vel fyrir stroff (ljósa peysan á myndum) eða hafa hana síðari og hafa klaufar á hliðunum (svarta peysan á myndum). Einnig eru gefnir tveir valkostir með úrtöku í ermum, annars vegar jöfn þrenging niður ermi og hins vegar minna tekið úr niður ermi og svo tekið vel saman fyrir stroff með lengra og þrengra stroffi. 

 Efni
- Nuovo Irlanda eða Maxi Soft frá Lana Gatto.
- Angel by Permin eða Silk Mohair frá Lana Gatto eða 50 Mohair Shades frá Katia.

Stærð Garnmagn Nuovo Irlanda / Maxi soft Garnmagn Mohair
XXS 450 g 75 g
XS/S 500 g 100 g
M/L 550 g 100 g
XL 650 g 125 g
XXL 750 g 150 g


Það sem þarf
- Hringprjónn nr. 6 (40 cm)
- Hringprjónar nr. 7 (40, 80 og 100/120 cm langir)
- Hringprjónar nr. 6 (100 cm langir fyrir stroff á bol)
- Sokkaprjónar nr. 7 (ef þarf í XXS fyrir stroff á ermum)
- Sokkaprjónar nr. 6 (ef valið að gera þrengri ermar)
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Mál
Lengd á bol, frá handvegi, með stroffi
XXS: 30 cm
XS/S: 32 cm
M/L: 34 cm
XL: 36 cm
XXL: 39 cm

Ummál á bol
XXS: 104 cm
XS/S: 111 cm
M/L: 120 cm
XL: 128 cm
XXL: 137 cm

Lengd á ermum frá handvegi, með stroffi
XXS: 34 cm
XS/S: 36 cm
M/L: 38 cm
XL: 40 cm
XXL: 42 cm

Ummál á ermum
XXS: 34 cm
XS/S: 37 cm
M/L: 41 cm
XL: 46 cm
XXL: 51 cm

Prjónfestan í þessari peysu er sú að 14 lykkjur á prjóna nr. 7 gera 10 cm með því að nota einn þráð af Nuovo Irlanda eða Maxi Soft og einn þráð af mohair.

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu. 

Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.