Umsagnir prjónara
Húfan er prjónuð neðan frá og upp og í hring.
Nuovo Irlanda frá Lana Gatto eða Merino Aran frá Katia.
Einnig er hægt að nota Merino Tweed, Maxi Soft, Sport og Special Aran.
Stærðir og magn af garni
Stærðir | Magn |
1-4 ára | 100 g |
4-8 ára | 100 g |
8-12 ára | 100 g |
Fullorðins | 100 g |
Það sem þarf
- Hringprjónar nr. 5, 40 sm
- Sokkaprjónar nr. 5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki
Ummál
1-4 ára: 36 cm
4-8 ára: 38 cm
8-12 ára: 40 cm
Fullorðins: 42 cm
Prjónfestan í þessari húfu er sú að 20 lykkjur á prjóna nr. 5 gera 10 sm með því að nota einn þráð af Nuovo Irlanda frá Lana Gatto.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.