Þessi uppskrift er á íslensku, og afhendist rafrænt samstundis eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Leiðbeiningar um hvernig skal nálgast uppskriftina er að finnahér.
Húfan er prjónuð neðan frá og upp og í hring. Útskýringar varðandi útaukningu og úrtöku eru mjög ítarlegar en það er gert fyrir þá sem eru ekki vanir prjónarar og eru jafnvel að stíga sín fyrstu skref í prjónaskap.
Þessi húfu er líka hægt að fá sem part af settinu "Maísól heilgalli og húfa". Endilega athugaðu hvort það henti þér að kaupa settið.
Stærðir og magn af garni 0-3 mánaða: 50gr 3-6 mánaða: 50 gr 6-12 mánaða: 50 gr 1-2 ára 100 gr 2-4 ára: 100 gr
Það sem þarf - hringprjónar nr. 4 (40sm) - sokkaprjónar nr. 4 - nál til frágangs - prjónamerki - 1-2 dúskar, eftir smekk
Ummál 0-3 mánaða: 33 sm 3-6 mánaða: 36 sm 6-12 mánaða: 38 sm 1-2 ára: 41 sm 2-4 ára: 43 sm
Prjónfestan í þessari húfu er sú að 23 lykkjur á prjóna nr. 4 gera 10 sm.
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd ervísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals.Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.
Smelltuhérfyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu.
Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.